Þjálfun og leikur hvolpa

Þjálfun og leikur eru lykillinn að heilbrigðum þroska hvolpsins þíns Vel þjálfaður og hlýðinn hvolpur er líklegri til að vera í góðu jafnvægi og ánægður þegar hann verður fullorðinn.

Þrjár ástæður fyrir því að þjálfa hvolpinn þinn

1/3

Gott fyrir andlega og líkamlega heilsu hans

Þjálfun hjálpar hvolpinum þínum að takast á við nýjar aðstæður og kemur í veg fyrir að hann verði mannafæla. Þannig skilar þjálfunin sér í betri líðan hvolpsins innan um annað fólk og önnur dýr. Það er skynsamlegt að blanda þjálfun saman við leik. Þá fær hvolpurinn útrás fyrir orkuna sína og verður hraustur og ánægður.

German Shepherd puppy chasing after a ball outdoors
2/3

Þið getið átt gæðastundir saman

Hundar eru félagsverur og njóta þess að vera með eiganda sínum. Þjálfun er frábært tækifæri til að átta sig betur á persónuleika hvolpsins, eiga góða stund með honum og styrkja tengslin.

Puppy being carried by owner
3/3

Þjálfaðir hvolpar hegða sér vel

Það þarf ekki mikla þjálfun til að gera sambúðina með hvolpinum miklu þægilegri. Hvort sem hann er skilinn eftir heima eða mætir í boð með fjölskyldunni, getur þú treyst því að hann verður vinalegur, hlýðinn og skemmtilegur félagsskapur.

Welsh Pembroke Corgi puppy running outside in a garden

Hundar eru í eðli sínu hjarðdýr. Þess vegna getur það valdið hvolpinum þínum streitu að vera einn heima klukkutímum saman. Þessi „aðskilnaðarkvíði“ getur leitt til þess að hann nagi, gelti og óhreinki heimilið. Þess vegna er mikilvægt að undirbúa hvolpinn undir að verja tímanum aleinn.

Ráðleggingar um þjálfun hvolpa

Hvolpar geta verið fljótir að læra og haft gaman af vel skipulagðri æfingu. Hér eru nokkur ráð til að gera æfinguna að ánægjulegri stund svo þið hvolpurinn fáið sem mest út úr hverri æfingu.

Hvernig á að húsvenja hvolp

Hvolpar eru oft ekki fyllilega húsvanir þegar þeir koma fyrst inn á nýtt heimili. Til að halda smáslysum í lágmarki getur verið gott að koma hvolpinum í reglulega rútínu og fylgjast með hegðun hans.

Að húsvenja hvolpinn þinn

Að kenna hvolpinum grundvallaratriðin

Það verður þægilegra fyrir þig að hafa stjórn á hvolpinum þínum ef þú kennir honum nokkrar grunnskipanir. Auk þess líður hvolpinum þá betur í alls kyns aðstæðum. Hann verður líka öruggari í margmenni og á hættulegum stöðum þannig að þú getur þá tekið hann með þér hvert sem er. Hér að aftan eru nokkrar grunnskipanir sem þú þarft að kenna honum:

Hvernig þjálfa skal hvolp til að sitja

Byrjaðu á að halda hundanammi fyrir framan nefið á hundinum. Lyftu namminu yfir höfuð hundsins til að hvetja hann til að setjast. Þegar hundurinn hallar höfðinu til að elta nammið ætti hann að setjast af sjálfu sér. Verðlaunaðu þá hundinn fyrir góða hegðun.

Endurtaktu þessi skref nokkrum sinnum á dag þar til hundurinn skilur þetta. Eftir það skaltu halda áfram að nota handahreyfinguna en hætta smám saman að gefa nammi. Þegar hundurinn er farinn að hlýða þessu geturðu byrjað að nota raddskipunina samhliða.

Hvernig þjálfa skal hvolp til að leggjast

Þegar hvolpurinn þinn hefur lært að setjast geturðu kennt honum að leggjast niður með því að halda á nammi, færa það niður milli framfótanna og draga það síðan í burtu frá honum. Þegar hann leggst niður skaltu verðlauna hann fyrir góða hegðun. Haltu svo áfram að endurtaka þetta og minnkaðu smám saman nammigjöfina þar til hvolpurinn hlýðir skipuninni við allar aðstæður.

Þegar þú ert viss um að hvolpurinn geti þetta með auðveldu móti geturðu byrjað að tengja einnig raddskipun við þessa skipun.

Að kenna hvolpinum að bíða

Byrjaðu á því að kenna hundinum þínum að setjast með því að gefa honum ábendingu með höndinni og segja „sestu“. Réttu úr handleggnum og láttu lófann vísa fram um leið og þú segir „kyrr“.

Bíddu í nokkrar sekúndur og verðlaunaðu hann svo fyrir góða hegðun. Endurtaktu æfinguna. Biddu nú hundinn þinn að setjast með því að segja „sestu“ en í þetta sinn skaltu stíga skref aftur á bak, með útréttan handlegg og lófann þannig að hann vísi í átt að hundinum, um leið og þú segir „kyrr“. Bíddu í þrjár sekúndur áður en þú stígur fram og verðlaunar hundinn þinn.

Endurtaktu þessar æfingar og auktu kröfurnar smám saman með því að stíga lengra aftur á bak frá honum en mundu að verðlauna hann í hvert skipti fyrir góða hegðun. Ekki gleyma að gefa hundinum lausnarskipun við lok hverrar æfingar með því að hvetja hann til að standa upp. Bestur árangur næst ef æft er mörgum sinnum og í nokkrar mínútur í einu.

Hvernig þú þjálfar hvolp til að koma til þín

Hvolpar eru ekki mjög einbeitt dýr og því er best að gera æfingar á lokuðu svæði þar sem truflanir eru mjög fáar. Byrjaðu á að láta hvolpinn rölta burt, beygðu þig svo niður, opnaðu faðminn og notaðu spenntan raddblæ til að kalla nafnið hans og síðan orðbendinguna.

Þegar hann kemur skaltu gefa honum mikið hrós og verðlauna með nammi. Síðan skaltu gefa honum annað nammi meðan þú smellir taumnum á ólina. Þegar hann er búinn með nammið skaltu losa tauminn, standa upp og ganga í burtu. Endurtaktu svo ferlið frá byrjun.

Æfðu á hverjum degi í nokkrar vikur og hafðu æfingarnar stuttar. Gerðu æfingarnar við mismunandi aðstæður, en alltaf með öryggi hundsins í huga.

Hvernig þjálfa skal hvolp til að ganga við hæl

Byrjaðu á að láta hundinn sitja. Hafðu nammi í höndinni og haltu því í hökuhæð hundsins. Gakktu síðan rösklega af stað og segðu „hæll“.

Þegar hundurinn er að fara að ná þér skaltu stoppa og láta hann setjast. Síðan skaltu verðlauna hundinn fyrir góða hegðun. Endurtaktu þetta í nokkrar mínútur eða þar til hundurinn verður þreyttur.

Æfðu hvenær sem tækifæri gefst. Að ganga við hæl er nokkuð flókin hegðun fyrir hunda svo þú munt ná bestum árangri með tíðum æfingum í nokkra mánuði.

Brown Labrador puppy standing outside in a garden with owners

Að halda áfram þjálfun hvolpsins

Það getur verið bráðsnjallt að fara í hvolpaskóla þar sem þú getur kennt hvolpinum þínum nýjar æfingar undir leiðsögn þjálfara. Hvolpurinn fær góða umhverfisþjálfun í hvolpaskólanum og venst því að vera innan um annað fólk og aðra hunda.

Hvolpar eru sannkölluð orkubúnt og eru fljótir að læra en þeir þreytast líka auðveldlega. Þess vegna er mikilvægt að æfingastundirnar séu stuttar og að hvolpurinn fái tíma til að læra smám saman og í rólegheitum.

Kassaþjálfun hvolps

Kassaþjálfun er örugg og einföld aðferð til að venja hvolpinn þinn við að búa á heimili þínu og koma í veg fyrir óæskilega hegðun á borð við að naga eða óhreinka.

Að venja hvolpinn við kassa

Að leika við hvolpinn

German Shepherd puppy in black and white on a white background with a ball in its mouth

Af hverju er leiktími svona mikilvægur fyrir hvolpa?

Leikur er mikilvægur þáttur í þroskaferli þeirra. Að leika sér með leikföng og eiga samskipti við þig á hverjum degi hjálpar honum að skilja nokkrar af þeim grundvallarreglum sem honum eru nauðsynlegar til að verða hamingjusamur fullorðinn hundur í góðu jafnvægi. Leiktími hjálpar einnig gæludýrinu þínu:

  • Að auka færni og læra nýjar skipanir
  • Að skilja að bit og nart sé ekki leyfilegt
  • Til að styrkja tengslin á milli ykkar
  • Til að viðhalda virkni og heilbrigði
  • Til að tryggja að þeir fái andlega örvun

Hvernig leikföng henta hvolpum best?

Veldu leikföng sem vekja forvitni hjá hvolpinum þínum og hvetja hann til að hreyfa sig eða leikföng sem hafa nýtt bragð eða áferð.
Beagle puppy standing in a cardboard box

Stór pappakassi

Stór pappakassi er frábær staður til að hlaupa, fela sig og mun að öllum líkindum veita hvolpinum útrás fyrir að naga. Farðu þó varlega ef þú vilt ekki að hann nagi pappann um allt heimilið.

Australian Shepherd puppy playing in the grass with a toy

Gúmmíleikföng

Hvolpurinn getur nagað gúmmíleikföngin.

Dachshund puppy laying on a rug playing with a toy

Gagnvirk leikföng

Gagnvirk leikföng sem innihalda nammi hjálpa til við að örva hvolpinn þinn.

Labrador Retriever puppy eating from a red puzzle feeder

Þrautaskálar með fóðri

Dýr borða hægar úr þrautaskálum.

Ráð varðandi leik við hvolpinn

Veldu viðeigandi leikföng

Kauptu bara leikföng sem eru nægilega stór til að hvolpurinn þinn geti ekki gleypt þau. Gakktu úr skugga um að þau séu endingargóð og kannaðu reglulega hvort þau eru að skemmast

Reglulegir leiktímar

Gefðu þér að minnsta kosti tvo leiktíma með hvolpinum þínum á hverjum degi og sameinaðu þá þjálfunarlotum svo að ánægjan og þjálfunin verði sem mest

Bannaðu bit

Ef hvolpurinn bítur skaltu hætta leiknum og láta hann róa sig

Forðastu hált gólf

Veldu herbergi þar sem gólfið er ekki hált, svo hvolpurinn meiði sig ekki

Dachshund mother and puppies in black and white on a white background

Að umhverfisþjálfa hvolp

Félagsmótun er eitt mikilvægasta skrefið í því að tryggja að hvolpurinn þinn þroskist í sjálfsöruggan fullorðinn hund í góðu jafnvægi. Það er aldrei of snemmt að byrja í rólegheitunum að kynna gæludýrið fyrir nýjum upplifunum, fólki og dýrum.