Við skulum tala um Chihuahua með langan feld
Opinbert heiti: Chihuahua með langan feld
Önnur heiti: Chiwawa, Chi
Uppruni: Mexíkó
Slefmyndun
1 out of 5Snyrtiþarfir
3 out of 5Hármissir
3 out of 5Gelthneigð
2 out of 5Orkuþörf *
3 out of 5Samhæfni með öðrum gæludýrum
3 out of 5Þolir hann heitt veður?
3 out of 5Þolir hann kalt veður?
1 out of 5Getur búið í íbúð?
5 out of 5Getur verið einn?*
2 out of 5Hentar sem fjölskylduhundur?*
4 out of 5
Male | Female |
---|---|
Height | Height |
12.7 - 22.86 cm | 13 - 20 cm |
Weight | Weight |
1 - 3 kg | 1 - 3 kg |
Hvolpar | Fullorðnir |
---|---|
2 til 10 mánaða | 10 mánaða til 8 ára |
Eldri hundar | Öldungar |
8 til 12 ár | Frá 12 ára aldri |
Ungviði | |
Fæðing til 2 mánaða |
Slefmyndun
1 out of 5Snyrtiþarfir
3 out of 5Hármissir
3 out of 5Gelthneigð
2 out of 5Orkuþörf *
3 out of 5Samhæfni með öðrum gæludýrum
3 out of 5Þolir hann heitt veður?
3 out of 5Þolir hann kalt veður?
1 out of 5Getur búið í íbúð?
5 out of 5Getur verið einn?*
2 out of 5Hentar sem fjölskylduhundur?*
4 out of 5
Male | Female |
---|---|
Height | Height |
12.7 - 22.86 cm | 13 - 20 cm |
Weight | Weight |
1 - 3 kg | 1 - 3 kg |
Hvolpar | Fullorðnir |
---|---|
2 til 10 mánaða | 10 mánaða til 8 ára |
Eldri hundar | Öldungar |
8 til 12 ár | Frá 12 ára aldri |
Ungviði | |
Fæðing til 2 mánaða |
Fáðu að vita meira um Chihuahua með langan feld
Allt sem þú þarft að vita um tegundina
Það er við hæfi að nota setninguna „besti vinur mannsins“ til að lýsa Chihuahua með langan feld því þessir hundar eru afar traustir félagar. Þeir njóta þess að kúra en eru sömuleiðis ávallt reiðubúnir að verja eigendur sína. Chihuahua-hundar eiga alveg til að gelta á ókunnuga en ekki er þörf á að hafa miklar áhyggjur af slíku. Athygli þeirra mun fljótt beinast að einhverju öðru. Þessir hundar eru alltaf til í að leika sér!
Kraftmikill persónuleiki Chihuahua-hundanna endurspeglast í vinsældum hundategundarinnar: Hundategundin er í 11. sæti á lista hundaræktunarfélagsins American Kennel Club yfir vinsælustu hundategundirnar.
Og geturðu sagt töskuhundur?! Hundar af þessari tegund vega aldrei meira en 3 kíló og er því hægt að taka með sér nánast hvert sem er.
Iðulega er hundaeigendum ráðlagt að fylgjast vel með börnum í kringum hundana vegna þess að hundarnir gætu skaðað börnin fyrir slysni. Hins vegar er þessi hundategund afar smágerð þannig að börnin þurfa að gæta sín þegar þau leika við Chihuahua-hunda. Viðhafa skal gát því þessir hundar geta verið viðkvæmir. Það er upplagt að leyfa hundunum að leika sér innandyra eða í litlum hundagörðum. Einnig njóta Chihuahua-hundar góðs af andlegri örvun og leikir eru upplögð afþreying.
Chihuahua-hundar eru ekki íturvaxnir varðhundar en eru ávallt að gæta og vernda „hjörðina“ á heimilinu. Þeir eru yfirleitt hlédrægir í kringum ókunnuga en það dregur úr slíkri varkárni þegar nýjum tengslum er komið á.
2 staðreyndir um Chihuahua með langan feld
1. Ekki skal dekra of mikið við hundana
Chihuahua með langan feld geta þyngst ótrúlega hratt. Litlir skrokkar ráða oft illa við of mikið af snarli. Best er að nota handfylli af þurrfóðri úr daglegri næringarinntöku hundanna sem verðlaun. Chihuahua-hundar eiga að vega að hámarki 2,7 kg samkvæmt opinberum leiðbeiningum fyrir hundategundina.
2. Svo lítill í svo stórum heimi
Chihuahua-hundar eru svo sannarlega hugrakkir: Þetta er hundategund sem hefur óhikað skorað margfalt stærri hunda á hólm. Lykillinn að réttri félagsfærniþjálfun er að kenna hundunum hvernig á að umbera aðra.
Saga tegundarinnar
Margir velta fyrir sér uppruna hinna smágerðu Chihuahua-hunda. Þeir spruttu fram á sjónarsviðið á 12. öld í Mexíkó þegar Aztekarnir sigruðust á Toltex þjóðflokkinum og eru afkomendur Techichi-hundsins sem var samanreknari forveri Chihuahua-hundanna. Techichi-hundarnir voru léttari og liprari á fæti en núverandi.Chihuahua-hundar, sem er erfitt að gera sér í hugarlund þegar um svona smágerða hundategund er að ræða.
Chihuahua-hundar urðu afar vinsælir í Bandaríkjunum um miðja 19. öld þegar bandaríkjamenn uppgötvuðu hundategundina á upprunasvæði hundana í fylkinu Chihuahua í Mexíkó sem liggur við landamæri Texas. Techichi-hundategundin var síðan endurskírð og Chihuahua-hundategundin blómstraði norðan megin við landamærin.
Chihuahua með langan feld eru oft klíkugefnir, þ.e. vilja bara vera með eigin hjörð. Hundar af þessari tegund eru ekki ræktaðir til að sinna ákveðnu hlutverki, Chihuahua-hundum líður best sem fjölskylduhundum og auðvitað sem frábærum ferðafélögum. Þeir eru af fullkominni ferðastærð: Chihuahua-hundategundin er talin vera sú minnsta í heimi og eru stærstu hundarnir rétt rúmlega 2,72 kg.
Frá höfði til skotts
Líkamleg sérkenni Chihuahua með langan feld
1.Eyru
2.Höfuð
3.Líkami
4.Feldur
5.Skott
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um Chihuahua-hunda með langan feld, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Þrályndur smáhundur
Chihuahua-hundar með langan feld geta verið nokkuð þverir og þrjóskir. Slíkt kemur nokkuð á óvart miðað við hversu smágerðir þeir eru. Smágerðir hundar sem vilja fá sitt í gegn. Chihuahua með langan feld eru snjallir og munu skáka eigendum sínum ef þeir hafa ekki varan á! Lausnin: Agaðu hundinn þinn snemma og vertu viss um að hann viti hver ræður. Viðeigandi þjálfun Chihuahua með langan feld getur komið í veg fyrir þrjóskuköst og almennt séð lagt grunn að góðri hegðun.
Hundarnir verða úrvinda ef þeir fá of mikla hreyfingu
Chihuahua-hundar eru vissulega orkumikil tegund, en hins vegar er ekki ráðlegt að fara með Chihuahua með langan feld í langa göngutúra eða leyfa hundunum að leika sér endalaust. Minni hreyfing dugar svona litlum skrokki. Einföld hreyfing innandyra á hverjum degi nægir Chihuahua með langan feld og styttri göngutúrar henta þessari hundategund betur. Eins og á við um alla smáhunda er hægt að setja hundana í burðartösku síðasta spölinn heim án fyrirhafnar ef þeir verða þreyttir!
Chihuahua-hundar geta glímt við nokkur heilsufarsvandamál
Minni hundategundir hafa tilhneigingu til að þjást af blóðsykurslækkun. Chihuahua með langan feld eru afar smágerðir hundar og virðast ekki þurfa mikla hreyfingu. Hins vegar verða hundarnir frekar orkulitlir ef of langur tími líður á milli máltíða. Haltu þig við reglubundnar máltíðir og leiðbeiningar um fóður á umbúðum. Þessi hundategund getur stundum fengið hjartakvilla eins og þrengri hjartaloka eða ósæðalokusjúkdóma, eða sjúkdóma tengda hjartalokum, augnsjúkdóma eða liðhlaup í hnéskel. Ráðlagt er að fara með hundana reglulega í skoðun hjá dýralækni til að komast fyrir slíka sjúkdóma.
Heilbrigt fóður, heilbrigðari hundur
Við val á fóðri fyrir Chihuahua-hund þarf að huga að ýmsum þáttum: Aldur hans, lífsstíl, hreyfingu, líkamsástand og heilsu, ásamt hugsanlegum veikindum eða veikleikum. Fóður veitir orku til að sjá fyrir nauðsynlegri líkamsstarfsemi og heilnæm fóðursamsetning ætti að innihalda rétt magn næringarefna til að forðast skort eða of mikla næringu, en í báðum tilfellum hefur þetta skaðleg áhrif á hundinn. Eftirfarandi ráðleggingar eru fyrir heilbrigð dýr. Ef hundurinn á við heilsuvandamál að stríða skal hafa samband við dýralækninn sem mun skrifa upp á sérstaka fóðrun. Hreint og tært vatn ætti að vera til staðar öllum stundum til að styðja við heilbrigði þvagfærakerfisins. Þegar heitt er í veðri og sérstaklega þegar hundurinn er úti að hreyfa sig, skal hafa vatn meðferðis til að hann geti drukkið nógu oft.
Þarfir Chihuahua-hvolpa hvað varðar orku, prótín, steinefni og vítamín eru mun meiri en hjá fullorðnum hundum. Hvolparnir þurfa orku og næringarefni til að viðhalda líkamanum en einnig til að stækka og byggja hann upp. Ónæmiskerfi Chihuahua-hvolpa þroskast smátt og smátt fram að 8 mánaða aldri. Blanda andoxunarefna, þar á meðal E-vítamíns, getur styrkt ónæmiskerfið á þessum tímum sem einkennast af miklum breytingum, reynslu og nýjum kynnum. Meltingargeta hvolpanna er ekki sú sama og hjá fullorðnum Chihuahua-hundum: Meltingarkerfið er ekki enn þroskað og mikilvægt er að veita auðmeltanleg prótein sem líkaminn getur notað á skilvirkan hátt. Jöfn neysla trefja, svo sem psyllium, getur auðveldað þarmaflutning og stuðlað að góðum hægðum.
Tennur hvolpsins, sem eru í byrjun mjólkurtennur og verða svo að fullorðinstönnum, eru mikilvægur þáttur sem taka þarf tillit til þegar stærð, lögun og harðleiki fóðurkúlna eru ákveðin. Þessu vaxtartímabili fylgir mikil orkuþörf og maturinn verður að hafa mikið næringarinnihald (sett fram sem kkal/100 g af fóðri), en magn annarra næringarefna er einnig hærra í fóðri fyrir hvolpa á vaxtartíma. Mælt er með að skipta daglegri næringarþörf í þrjár máltíðir á dag þar til hvolparnir verða sex mánaða, en þá er skipt yfir í tvær máltíðir á dag.
Helstu þarfir sem næring fullorðinna Chihuahua-hunda þarf að uppfylla eru:
Að viðhalda heilbrigðri þyngd með því að nota mjög meltanleg innihaldsefni og halda fituinnihaldi innan skynsamlegra marka
Að stuðla að heilsu og fegurð húðarinnar og feldarins með íbættum nauðsynlegum fitusýrum (sér í lagi EPA-DHA), nauðsynlegum amínósýrum og B-vítamínum til að styrkja rakavörn húðarinnar.
Vernda verður mjög viðkvæma kjálka hundanna. Chihuahua-hundar hafa mikla tilhneigingu til að fá tannsteina. Tannsteinsmyndun á tönnum veldur tannskemmdum og því er afar mikilvægt að gefa hundunum þurrfóður með kalsíumklóbindiefnum sem vinna gegn munnsjúkdómum. Þurrfóðrið þarf að vera mjög smátt og henta nettum kjálkum Chihuahua-hunda til að forðast vandamál við að taka til sín fóðrið. Þetta getur einnig örvað matarlystina, en þessir hundar eru stundum matvandir.
Hvað varðar Chihuahua-hunda sem eru að mestu leyti innihundar skal ekki gefa slíkum hundum mat eða feitt snarl og fylgja nákvæmlega leiðbeiningum um fóðrun sem koma fram á umbúðunum. Slíkt er m.a. gert til að koma í veg fyrir of mikla þyngdaraukningu hjá geldum Chihuahua-hundum, vegna þess að geldir hundar hafa meiri tilhneigingu til að fitna.
Leitast skal við að gefa hundunum fæðu með auðmeltanlegum prótínum, hæfilegu trefjainnihaldi og hágæða kolvetnum, en slíkt getur minnkað magn hægða og dregið úr lykt af hægðum.
Mælt er með mataræði sem styður einnig við heilbrigði þvagfæra.
Eftir 8 ára aldur byrja Chihuahua-hundar að sýna merki um öldrun. Mataræði auðgað með andoxunarefnum hjálpar til við að viðhalda orku og lykilnæringarefni, svo sem tárín, styrkja hjartastarfsemina. Með hækkandi aldri breytast einnig meltingargeta og næringarkröfur hundanna og við val á fæði fyrir eldri Chihuahua-hunda ætti að hafa eftirfarandi í huga:
Auki magn C- og E-vítamína. Þessi næringarefni hafa andoxunareiginleika sem styrkja varnir líkamsfrumna gegn skaðlegum áhrifum oxunarálags, sem flýtir fyrir öldrun.
Hágæðaprótein. Öfugt við útbreiddan misskilning hefur það að lækka próteininnihald í fóðri lítinn ávinning við að takmarka nýrnabilun vegna þess að eldri hundar eru síður duglegir við að nota fæðuprótein en yngri hundar. Minnkun fosfórinnihalds er eina leiðin til að hægja á skaða á nýrnavirkni.
Meira magn snefilefna, svo sem járns, kopars, sinks og mangans hjálpar við að viðhalda góðu ástandi húðar og feldar.
Meira magn fjölómettaðra fitusýra til að halda feldinum í góðu ásigkomulagi. feldinum í góðu ástandi. Venjulega framleiða hundar þessar fitusýrur en með aldrinum getur dregið úr framleiðslu þeirra.
Með hækkandi aldri eiga hundar það til að þróa með sér tannkvilla. Til að tryggja að þeir haldi áfram að éta nægilega mikið þurfa stærð, lögun og áferð þurrfóðursins að henta kjaftinum. Fóðurblanda sem inniheldur kalsíumklóefni styður við tannheilsu með því að draga úr tannsteini.
Þótt hún sé auðvitað mikilvæg alla ævi Chihuahua-hundsins verður heilbrigði hjartastarfsemi sífellt mikilvægari eftir því sem hundurinn eldist. Blanda næringarefna, eins og tárín og EPA-DHA, mun hjálpa til við að viðhalda heilbrigði hjartans í rosknum Chihuahua-hundum.
Umönnun Chihuahua með langan feld
Ábendingar um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Chihuahua með langan feld er smáhundur svo lengri gönguferðir og morgunskokk koma ekki til greina en það er margt annað sem er hægt að gera á degi hverjum. Eins og allir hundar þurfa þeir hæfilega hreyfingu til að halda heilsunni. Stutt rölt um hverfið ætti að nægja til að halda þeim í góðu formi. Chihuahua-hundar geta lifað lengi og gott er að halda þeim í formi ævina á enda með viðeigandi hreyfingu, svo sem einföldum leikjum innandyra og að láta þá sækja hluti.
Fljótandi feldur langhærðs Chihuahua er svo sannarlega sjón að sjá. Haltu feldinum í formi með því að snyrta hann tvisvar til þrisvar í viku til að koma í veg fyrir flækjur og hnúta og ekki vanrækja hárið á eyrum þeirra, fótleggjum og fótum. Blessunarlega fer þetta hundakyn ekki mikið úr hárum. Klippa þarf klærnar reglulega og bursta tennurnar til að koma í veg fyrir tannholdsvandamál.
Hinn dyggi, snjalli Chihuahua-hundur með löngum feldi er yndislegur hundur til að hafa í kringum sig. Þeir eru einkar tryggir svo þeir vilja þóknast eiganda sínum og bregðast vel við hlýðniþjálfun. Best er að kenna Chihuahua-hundum með langan feld góða siði frá unga aldri og þannig er unnið gegn tilhneigingu þeirra til að vera fullákveðnir.
Chihuahua með langan feld er smáhundur svo lengri gönguferðir og morgunskokk koma ekki til greina en það er margt annað sem er hægt að gera á degi hverjum. Eins og allir hundar þurfa þeir hæfilega hreyfingu til að halda heilsunni. Stutt rölt um hverfið ætti að nægja til að halda þeim í góðu formi. Chihuahua-hundar geta lifað lengi og gott er að halda þeim í formi ævina á enda með viðeigandi hreyfingu, svo sem einföldum leikjum innandyra og að láta þá sækja hluti.
Fljótandi feldur langhærðs Chihuahua er svo sannarlega sjón að sjá. Haltu feldinum í formi með því að snyrta hann tvisvar til þrisvar í viku til að koma í veg fyrir flækjur og hnúta og ekki vanrækja hárið á eyrum þeirra, fótleggjum og fótum. Blessunarlega fer þetta hundakyn ekki mikið úr hárum. Klippa þarf klærnar reglulega og bursta tennurnar til að koma í veg fyrir tannholdsvandamál.
Hinn dyggi, snjalli Chihuahua-hundur með löngum feldi er yndislegur hundur til að hafa í kringum sig. Þeir eru einkar tryggir svo þeir vilja þóknast eiganda sínum og bregðast vel við hlýðniþjálfun. Best er að kenna Chihuahua-hundum með langan feld góða siði frá unga aldri og þannig er unnið gegn tilhneigingu þeirra til að vera fullákveðnir.
7/7
Allt um Chihuahua með langan feld
Chihuahua með langan feld hefur allt til að bera til að vera frábært gæludýr: skemmtilegt geðslag, mikla orku og nóg af ást. Chihuahua-kynið hentar líka vel fyrir nýja hundaeigendur. Enda er þetta ekkert sérstaklega stór skammtur af hundi! Hollusta er sjálfsögð fyrir langhærða Chihuahua og stærð þeirra gerir það einnig að verkum að þeir er meðfærilegir.
Chihuahua með langan feld er ekki árásargjarn að upplagi og það er eins með þá og aðra hunda, að þótt þeir gelti og glefsi er óvíst að þeir bíti. Þeir vilja stundum marka sér svæði, geta verið kvíðnir og eiga líka til að vilja ekki hleypa öðrum að eiganda sínum. Þótt Chihuahua með langan feld séu smávaxnir hundar er þessi hegðun ekki „krúttleg“ heldur þarf að beita aga og þá líður hundinum líka betur. Einnig skal útiloka alla undirliggjandi sjúkdóma sem gætu valdið hundinum kvíða.
Lesa meira um þetta efni
Heimildir
- Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
- Royal Canin Dog Encyclopaedia. Útg. 2010 og 2020
- Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
- Royal Canin BHN Product Book
- American Kennel Club https://www.akc.org/
Líkaðu við og deildu þessari síðu