Að breyta mataræði kattarins
Af hverju að skipta um kattafóður?
- Kettlingurinn þinn er tilbúinn að byrja að borða fullorðinsfóður
- Heilsufar kattarins þíns hefur breyst og hann þarf á sérhönnuðu fóðri að halda
- Þú vilt gefa blautfóður í stað þurrfóðurs eða öfugt eða byrja að gefa kettinum hvort tveggja.
Nú á tímum er hægt að gefa köttum vel samsett heilfóður án þess að eiga nokkurn tímann á hættu að hann skorti nauðsynleg næringarefni, sama á hvaða aldri hann er, hvert andlegt ástand hans er eða hverjir lífshættir hans eru. Fyrir vikið eru gæludýraeigendur líklegir til að skipta um kattafóður.
Af hverju er mikilvægt að fara varlega í sakirnar þegar skipt er um kattafóður?
Með sama hætti ættu allar breytingar á mataræði sem gerðar er yfir ævina að vera framkvæmdar smám saman. Þegar kettir fá nýja tegund matar verða þeir stundum á varðbergi. Þessi hegðun, að forðast það sem nýtt er, kallast nýjafælni - neophobia. Talið er að þessi hegðun sé eins konar vörn gegn því að borða eitraðan eða mengaðan mat. Þess vegna er betra að kynna nýjar tegundir fóðurs í áföngum. Þannig er minni hætta á að breytingin verði streituvaldandi eða leiði til þess að gæludýrið forðist nýja fóðrið.
Að breyta mataræði kattarins
Byrjaðu á að gefa kettinum svolítið af nýja fóðrinu saman við fóðrið sem hann er vanur. Auktu hlutfall nýja fóðursins síðan smám saman þar til hann venst því.
Það er skynsamlegt að hafa reglu á matartímum kattarins og reyna að sjá til þess að ekki séu miklar breytingar á umhverfi hans meðan hann er að venjast nýju fóðri.
Fylgstu með kettinum þínum
Related Articles
Líkaðu við og deildu þessari síðu