Er hundurinn þinn með hægðatregðu?
Hægðatregða er alvarleg. Hún er ekki bara óþægileg heldur getur hún líka verið merki um iðrasjúkdóm sem hefur mögulega hrjáð hvolpinn í einhvern tíma.
Ýmsir iðrasjúkdómar geta valdið hægðatregðu og þeir geta haft alvarlegar afleiðingar ef þeir eru ekki meðhöndlaðir strax. Hægðatregða getur til dæmis stafað af stíflu í þörmum eða annars staðar í meltingarveginum. Fyrirhyggjuleysi í fóðurvali og léleg næring geta valdið hægðatregðu.
Nokkur ráð ef hundurinn þinn hefur tilhneigingu til að fá hægðatregðu:
- Hringdu í dýralækninn þinn: Fyrst þegar hundurinn þinn fær hægðatregðu er ekki vitað hver ástæðan er. Það getur verið merki um að hundurinn þinn þurfi aðstoð með sérstakri næringu eða það getur verið einkenni alvarlegs undirliggjandi meltingarfærasjúkdóms. Dýralæknirinn getur hjálpað þér að greina þarna á milli og bæta líðan hundsins.
- Byrjaðu nýtt mataræði: Hvort sem þetta er í fyrsta sinn sem hundurinn þinn fær hægðatregðu eða ástandið er viðvarandi, er hugsanlegt að dýralæknirinn leggi til að þú gefir hundinum annað fóður. Nýtt mataræði sem er ríkt af óleysanlegum trefjum getur verið gagnlegt til að draga úr einkennum hægðatregðu, háð greiningu og einstökum tilvikum.
Ef spurningar vakna skaltu ræða við dýralækninn um einkenni iðrasjúkdóma og fá aðstoð við að koma meltingarkerfi hundsins í lag.
Related Articles
Finna dýralækni
Ef þú hefur áhyggjur af heilsu hundsins þíns skaltu ráðfæra þig við dýralækni.
Líkaðu við og deildu þessari síðu