Spjöllum um Pug-hunda
Pug-hundar eru feykivinsælir smáhundar og orkumiklir skemmtikraftar. Þeir eru frekar sérstakir í útliti en einstaklega ljúfir og gáskafullir. Hundar af þessari tegund eru oft miðpunktur athyglinnar. Feldurinn þarfnast ekki mikillar umhirðu, hundarnir þurfa ekki á mikilli hreyfingu að halda og hafa ekki tilhneigingu til að gelta mikið. Pug-hundarnir hafa meira að segja fengið einkunnarorð á latínu, „Multum in Parvo“ sem má þýða sem: „Margt býr í hinu smáa“.Opinbert heiti: Pug
Önnur heiti: Pug-hundur, kínverskur Pug
Uppruni: Kína
Slefmyndun |
|
Þolir hann heitt veður? | |
Snyrtiþörf | Þolir hundurinn kalt loftslag? | ||
Hárlos | Getur búið í íbúð? | ||
Gelthneigð | Illa |
Getur dýrið verið eitt?* | |
Orkuþörf (mikil, lág, í meðallagi) * | Lág | Hentar sem fjölskylduhundur?* | |
Færni til að búa með öðrum gæludýrum |
* Við mælum ekki með því að gæludýr séu skilin eftir í langan tíma. Félagsskapur getur komið í veg fyrir tilfinningalegt uppnám og eyðileggjandi hegðun. Ræðið við dýralækninn til að fá ráðleggingar.
Ekkert gæludýr er eins, jafnvel þó þau séu af sömu tegund og þetta yfirlit yfir sérkenni hverrar tegundar er aðeins til viðmiðunar.
Til að gæludýr sé ánægt og líði vel mælum við með því að það sé alið upp í samneyti við aðra og að séð sé fyrir grunnþörfum þess (og félagslegum og hegðunartengdum þörfum).
Skiljið gæludýr aldrei eitt eftir með barni.
Hafið samband við ræktandann eða dýralækninn til að fá frekari ráðleggingar.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Ungviði | Fæðing til 2 mánaða |
Hvolpar | 2 til 10 mánaða |
Fullorðnir | 10 mánaða til 8 ára |
Rosknir | 8 til 12 ára |
Eldri | 12 til 20 ára |
1/7
Lærðu að kynnast Pug-hundum
Allt sem þú þarft að vita um þessa tegund
Pug-hundar eru krúttlegir, fyndnir og litríkir einstaklingar. Hundarnir líta næstum út eins og „barnungur Yoda“ holdi klæddur. Þessir hundar eru mjög vinsælir, sér í lagi hjá fjölskyldufólki og eru rómaðir fyrir að vera skapgóðir og jafnlyndir. Pug-hundar eru galsafullir en afar klókir smáhundar og eru afar gæfir í kringum börn og önnur gæludýr ef þeir fá fullnægjandi þjálfun.
Yfirleitt þarf ekki að hafa mikið fyrir hundum af þessari tegund. Hundarnir eru með stuttan og sléttan feld sem er einfaldur í umhirðu og þurfa þar að auki aðeins hóflega mikið af hreyfingu. Pug-hundar eru oftast frekar yfirvegaðir og rólegir og gelta því ekki mikið.
Pug-hundar hafa verið eftirlæti hundavina í yfir 2000 ár og komu fyrst fram á sjónarsviðið í Kína þar sem hundar með flatt trýni hafa ávallt verið í hávegum hafðir. Hundarnir birtust fyrst í Evrópu á 16. öld og hafa verið afar vinsæl gæludýr um alla veröld allar götur síðan.
Pug-hundar eru ólíkir öðrum smáhundum að því leyti að Mastiffhundar eru forverar þeirra. Vert er að benda á að bæði Pug- og Mastiffhundar hafa svipaðar hrukkur.
Pug-hundar eru smávaxnir en þéttir á velli. Mjúkur og sléttur feldurinn getur verið í mismunandi litum, allt frá því að vera silfur- og apríkósulitaður til að vera ljósbrúnn og svartur. Trýnið er einnig afar svipmikið. Skrokkurinn er mjög búttaður og hringað skottið fullkomnar stílhreinar útlínur hundsins.
Pug-hundar eru samanreknar sófakartöflur og hafa því tilhneigingu til að þyngjast. En svo lengi sem Pug-hundar fá rétt fóður og fullnægjandi hreyfingu er hægt að halda þeim í fantaformi. Pug-hundar eru einnig nokkuð langlífir en meðalævilengd þeirra er um 12 til 15 ár.
Pug-hundar hafa oftar en ekki birst í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Frægasti Pug-hundurinn er án efa hinn talandi Frank í kvikmyndaseríunni Men in black. Einnig stal Pug-hundur Carters í sjónvarpsþáttunum Spin City oftast senunni og Pug-hundurinn Bess lék hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni The West Wing. Allir þessir hundar eru kvikmyndastjörnur!
2/7
Tvær staðreyndir um Pug-hunda
1. Ekki til að hæðast að
Pug-hundar geta fengið „innöndunarköst“ ef þeir verða of æstir sem valda því að hundarnir standa á öndinni og hnussa. Slík köst eru yfirleitt ekki skaðleg og hægt er að stytta köstin með því að nudda háls hundsins og róa hann niður með sefandi orðum.
2. Franska tengingin
Joséphine Bonaparte, keisaraynja og eiginkona Napóleóns, var mjög hrifin af Pug-hundunum og kallaði hundinn sinn „Fortune“. Síðar á lífsleiðinni smyglaði hún út skilaboðum í hálsbandi hundsins þegar hún sat í prísund í París. Frekari staðreyndir um Pug-hunda koma fram hér á eftir…
Saga kynsins
Pug-hundar eru ein af elstu hundategundum veraldar. Talið er að ræktun hundanna hafi byrjað fyrir 2000 árum eða jafnvel fyrr. Þessi tegund er af víðfrægum hundaættum. Pug-hundum fjölgaði mjög á Englandi eftir innrásina í keisarahöllina í Peking árið 1860.
Þegar Bretar sneru heim komu þeir með nokkra hunda sem þeir höfðu fundið þar. Hundategundin varð síðar vinsæl í Bandaríkjunum og Pug-hundarnir voru viðurkenndir af American Kennel Club árið 1885. Undanfarin ár hefur hundategundin öðlast enn frekari vinsældir og núna eru Pug-hundar eftirsóttustu smáhundarnir.
4/7
Frá höfði til skotts
Líkamleg sérkenni Pug-hunda
1. Höfuð
Trýnið er stutt, slétt og flatt og munnur fíngerður.
2. Trýni
Trýnið er stutt, slétt og flatt og munnur fíngerður.
3. Líkami
Bolurinn er stuttur með breiðum brjóstkassa og beinu baki.
4. Feldur
Feldurinn er mjúkur og sléttur og getur verið silfurlitaður, ljósbrúnn eða svartur.
5. Skott
Skottið situr hátt uppi og liggur í þéttum sveip yfir mjöðmunum.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um Pug-hunda, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Þessir hundar eiga það til að þjást af öndunarerfiðleikum.
Pug-hundar eru svokallaðir „breiðhöfðar“. Þar af leiðandi þjást hundar af þessari tegund oft af öndunarerfiðleikum vegna lögunar höfuðsins, trýnisins og hálsins. Önnur dæmi um slíka breiðhöfða eru m.a. French og English Bulldog, Pekingese og Boston Terrier. Pug-hundar eru með sérstaklega þröngan öndunarveg. Slíkt þýðir að Pug-hundar þola ekki við í heitu veðri og geta auðveldlega fengið sólsting. Þar af leiðandi skal fara í göngutúra á viðeigandi tímum dagsins, ef mjög heitt er í veðri. Eins og ævinlega skal leitast við að kaupa hunda af ábyrgum hundaræktendum sem hafa heilbrigði hundanna í fyrirrúmi.
6/7
Umhirða Pug-hunda
Hollráð um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Pug-hundar vilja helst liggja í kjöltu eigenda sinna og eru þar að auki miklir matgæðingar. Því þurfa þeir á góðri hreyfingu að halda á hverjum degi. Ein klukkustund á dag ætti að nægja hundunum, annað hvort göngutúr eða ferð í hundagarð. Svona hundar hafa einnig gaman að því að leika sér í garðinum.
Hins vegar ber að hafa í huga að Pug-hundar eru ekki miklir hlaupagarpar og mikil hlaup geta valdið oföndun. Í heitu veðri er líka best að fara með þá út snemma eða seint á daginn til að forðast hádegissólina. Þar sem þeir eru almennt ekki syndir skal einnig forðast vatn.
Einn af fjölmörgum kostum við að eiga Pug-hund er að þeir þurfa á afar lítilli snyrtingu að halda. Stuttur og mjúkur feldurinn sér í raun nánast um sig sjálfur. Hið eina sem hundarnir þarfnast er varfærnisleg burstun einu sinni í viku með meðalgrófum bursta eða greiðuhanska. Ekki er þörf á því að baða Pug-hunda nema hundarnir hafi verið að velta sér upp úr eðju. Smá aðvörun: Pug-hundar fella feld yfir hárlostímann og því þarf að bursta þá vandlega til að fjarlægja dauð hár. Klippa verður klærnar reglulega og halda þeim stuttum. Einnig verður að fara með hundana reglulega í eyrna- og augnskoðun. Að lokum er tíð tannburstun mikilvægt, sem og reglubundið tanneftirlit.
Þó svo að Pug-hundar séu fullkominn félagi þá geta þessir litlu hundar stundum verið pínulítið þrjóskir - sérstaklega þegar kemur að heimaþjálfun. Pug-hundar njóta því góðs af hvolpaþjálfun. Þegar þeir hafa náð tökum á hlutunum eru þau frekar gáfuð dýr og læra fljótt. Þeir munu einnig njóta góðs af þeirri félagsmótun sem fylgir þjálfuninni. Pug-hundar eru frekar viðkvæmir og verða að fá hvatningu og hrós. Þar af leiðandi bregðast hundarnir vel við þjálfun sem byggir á umbun og jákvæðri styrkingu. Pug-hundar geta orðið afar hlýðnir ef þeir fá rétta þjálfun.
7/7
Allt um Pug-hunda
Nei, af öllum þeim ótal hundategundum sem þú gætir valið eru Pug-hundar líklega ein sú auðveldasta. Þetta eru einstaklega geðgóðir hundar með feld sem er afar auðveldur í umhirðu. Pug-hundar eru frekar smávaxnir og ekki mjög orkumikil tegundog þurfa því aðeins á hóflegri hreyfingu að halda.
Já, Pug-hundar eru fjörugir og ástríkir og henta því vel sem fjölskylduhundar. Eins og á við um alla hunda er þjálfun nauðsynleg, ásamt börnum ef mögulegt er. Þar sem munnurinn er sérstakur eru þeir ófærir um að bíta fast. Af þessum sökum eru Pug-hundar taldir hinir fullkomnu fjölskylduhundar.
Sérsniðin næring fyrir Pug-hundinn þinn
Lesa meira um þetta efni
How your dog's nutrition needs change with age
How to adopt a dog
Things to consider before getting a dog
Sources
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Dog Encyclopaedia. Ed 2010 and 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book
5 - American Kennel Club https://www.akc.org/