Tölum um Jack Russell Terrier-hunda
Hvað orkustig varðar er ekki ólíklegt að smávaxni risinn Jack Russell Terrier hafi vinninginn á markaðnum. Fjörugu fasi þessara hunda fylgir broslegt sjálfstraust sem tjáir sig á skýran hátt: „Kæra veröld, færðu þig aðeins, ég er mættur.“ Kynið var upphaflega ræktað til veiða og það státar enn í dag af mikilli greind; sá sem kann til verka getur því auðveldlega þjálfað þessa hunda. Jack Russell Terrier-hundarnir mynda sterk tengsl við fjölskyldu sína, sérstaklega þann einstakling sem sinnir hinum daglegu þörfum þeirra. Ef þú ert sá einstaklingur hefurðu eignast vin til æviloka. Reyndar vin sem á erfitt með að sitja lengi kyrr.Opinbert heiti: Jack Russell Terrier
Önnur heiti: Jack Russell
Uppruni: England
Slefmyndun |
|
Heitt veður? | |
Hármissir | Getur búið í íbúð? | ||
Orkuþörf (mikil, lág, í meðallagi) * | Mikil | Fjölskylduhundur?* |
|
Samhæfni með öðrum gæludýrum | Getur verið einn?* |
* Við mælum ekki með því að gæludýr séu skilin eftir í langan tíma. Félagsskapur getur komið í veg fyrir tilfinningalegt uppnám og eyðileggjandi hegðun. Ræðið við dýralækninn til að fá ráðleggingar.
Ekkert gæludýr er eins, jafnvel þó þau séu af sömu tegund og þetta yfirlit yfir sérkenni hverrar tegundar er aðeins til viðmiðunar.
Til að gæludýr sé ánægt og líði vel mælum við með því að það sé alið upp í samneyti við aðra og að séð sé fyrir grunnþörfum þess (og félagslegum og hegðunartengdum þörfum).
Skiljið gæludýr aldrei eitt eftir með barni.
Hafið samband við ræktandann eða dýralækninn til að fá frekari ráðleggingar.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Ungviði | Fæðing til 2 mánaða |
Hvolpar | 2 til 10 mánaða |
Fullorðnir | 10 mánaða til 8 ára |
Eldri hundar | 8 til 12 ár |
Öldungar | Frá 12 ára aldri |
1/7
Fáðu að vita meira um Jack Russell Terrier
Allt sem þú þarft að vita um tegundina
Það er fátt sem jafnast á við hegðun og líkamsstöðu Jack Russell Terrier-hundsins . Hann lítur á sig sem risavaxið og kraftmikið villidýr. Það leynist bara innan í skrokki smáhunds.
Frakkur, galsafullur og stútfullur af orku arkar Jack Russell Terrier-hundurinn í gegnum tilveruna með lífsgleði að leiðarljósi. Traustur og tryggur er hann meira en til í að bjóða þér með í þá skemmtiferð.
Þótt Jack Russell Terrier-hundar geti orðið frábær fjölskyldudýr, einkum ef þeir fá félagsmótun sem hvolpar, geta þeir orðið „glefsandi æstir“ og henta því best í fjölskyldum með stálpuð börn sem skilja hvernig best er að hegða sér í kringum hund. Jack Russell-hundur hentar ekki vel í kringum smábörn eða mjög ung börn.
Jack Russell var upphaflega ræktaður til veiða og státar enn í dag af því úthaldi og skapgerð sem er óhjákvæmilegt einkenni hjá vinnuhundum, meðal annars því ríka veiðieðli sem hann er þekktur fyrir. Líklega finnst þér ekki spennandi tilhugsun að horfa upp á Jack Russell Terrier-hundinn þinn elta allt sem hreyfist og því er skynsamlegt að hafa hann ávallt í taumi.
Tvö atriði um þetta kyn sem vert er að hafa í huga: Þótt þeir séu smávaxnir þá þurfa þeir mikla hreyfingu – þú þreytist örugglega langt á undan þeim – og andlega örvun. Og þeim hugnast alls ekki að vera skildir eftir aleinir. Aðskilnaðarkvíði þessa kyns getur reyndar haft áhrif á almennt heilsufar hundsins. Sem betur fer mun snemmbær félagsmótun og þjálfun – jafnvel hjá sérfræðingi sem er kunnur séreinkennum Jack Russell Terrier-hunda – gera þessa hunda mjög fúsa til að fylgja þér í gegnum daginn.
2/7
2 staðreyndir um Jack Russell Terrier
1. Sagðirðu eitthvað?
Því hefur verið fleygt fram að Jack Russell Terrier-hundurinn sé mjög hrifinn af eigin rödd. Kannski er þetta vinaleg leið til að segja að þetta kyn geti gelt umtalsvert. Æsingurinn liggur í eðlinu og þeir láta hiklaust í sér heyra ef þeir eru í uppnámi. Eða þegar þeir eru alsælir. Eða þegar þeir heyra eitthvað hljóð. Þú skilur hvað átt er við. Yfirveguð en ákveðin þjálfun í upphafi getur haldið þessari tilhneigingu í skefjum.
2. Hver er nákvæm hreyfingarþörf þessara hunda?
Þótt hundar af þessu kyni séu litlir þá eru þeir líka fjörugir og þurfa að losa sig við umtalsvert magn af orku á hverjum degi. Ekki dugir að rölta með þá tvisvar á dag í stuttan tíma. Fyrir Jack Russell Terrier er gott að miða við a.m.k. eina klukkustund af hreyfingu. Stundir án ólar fullnægja sjálfstæðisþörf hundsins að hluta til – passaðu bara að hann sé í öruggu og lokuðu rými. Hann mun sleppa laus ef hann nær að grafa sér leið út – eins og sannur Terrier!
Saga tegundarinnar
Jack Russell Terrier-kynið má rekja til Englands seint á 19. öld þegar séra John Russel – nei, ekki sá sami og ræktaði John Russell Terrier-kynið – ræktaði hund sér til fylgdar á refaveiðum. Til að ekki yrði ruglast á hundunum og hundeltu dýrunum voru þeir hvítir að mestu, lágvaxnir til að vera í návígi við bráðina, nógu snöggir til að halda í við veiðimennina og nógu liðugir til að geta elt refina ofan í þröngar holur og hrakið þá út. Og þeir voru nógu forvitnir til að gelta hástöfum svo allir heyrðu þegar þeir fundu eitthvað, án þess að skaða bráðina í leiðinni.
Þessir þrautseigu Terrier-hundar voru því ræktaðir upp í tiltekið verkefni og þótt ekki sé hægt að rekja Jack Russell-hunda dagsins í dag til þessara fyrstu hunda prestsins er kynið enn mjög vinnusamt, en það kemur engum sem þekkir orkubirgðir og veiðieðli þessara hunda á óvart. Í dag eru eldspræku Jack Russell Terrier-hundarnir vinsælir sem góður félagsskapur, en þeir þurfa þó alltaf sitt rými til að kanna heiminn og örva snjallan hugann.
Engin ástæða er til að þreyta þig með allri löngu sögunni um opinbera vottun þessa kyns. Það nægir að fram komi að þessir hundar fengu loksins vottun af hálfu AKC árið 2001 og þá var heiti þeirra breytt í Parson Russell Terrier. The Jack Russell Terrier Breeders Association fylgdi í kjölfarið og breytti nafni sínu í Parson Russell Terrier Association of America. Áhugaverð staðreynd er sú að Australian National Kennel Council (ANKC) og New Zealand Kennel Club (NZCK) eru ein þeirra ræktunarsamtaka sem hafa skráð Jack Russell Terrier og Parson Russell Terrier sem ólík kyn.
4/7
Frá höfði til skotts
Líkamleg sérkenni Jack Russell Terrier
1. Augu
Dökk augu, möndlulaga og árvökur.
2. Trýni
Kolsvart trýni.
3. Hauskúpa
Flöt hauskúpa sem mjókkar í átt að hnakka.
4. Líkami
Stæltur skrokkur, hvítur að mestu og hlutfallslega örlítið stærri á lengdina en hæðina.
5. Skott
Sperrt rófa, ýmist bein eða sveigð örlítið fram á við.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um jack russel terrier, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Hopp og skopp
Þótt Jack Russell Terrier-hundar séu almennt heilsuhraustir eru nokkrir liðamótatengdir kvillar sem geta hrjáð þá, mögulega vegna stöðugrar hreyfiþarfar. Rótin er arfgengi sjúkdómurinn Legg-Calve-Perthes (LCP), en með skurðaðgerð er hægt að færa hundinn yfir í svokallað „luxating patellas“. Sem þýðir í raun að hnéskeljar hans geti færst úr stað. Þú verður fljótt var við einkennin, hundurinn haltrar, stingur við og tekur sér sitjandi stöðu eins og til að hlífa fætinum. Góður dýralæknir getur aðstoðað þig við að ákveða hvort þörf sé á skurðaðgerð.
6/7
Umönnun Jack Russel Terrier
Ábendingar um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Feldur Jack Russell Terrier-hunda getur verið mismunandi, en krefst þó alltaf frekar lítillar umhirðu, líkt og hundurinn sjálfur. Burstaðu feld hundsins vikulega til að fjarlægja laus hár, koma í veg fyrir flækjur eða hnúta og dreifa úr náttúrulegum olíum húðarinnar til að tryggja hreinan og skínandi feld. Klipptu klærnar eftir þörfum og leitaðu reglulega eftir eyrnamerg og óhreinindum í eyrum. Jack Russell Terrier-hundar þurfa mikla hreyfingu. Skelltu þér í langar gönguferðir, fjallgöngur eða hjólreiðatúra. Þreyttur Jack Russell Terrier er góður Jack Russell Terrier! Kynið hefur mikla veiðiþörf og snemmbúin þjálfun auðveldar þér að koma í veg fyrir slík vandamál. Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu þarf þolinmæði og festu til að tryggja að þjálfun viljugs Jack Russell Terrier gangi vel fyrir sig. Þar skiptir mestu að hafa þjálfunina fjölbreytta til að vinna gegn meðfæddri stuttri athyglisgetu hundsins.
7/7
Allt um Jack Russell Terrier
Jack Russell Terrier-hundar eru eitt vinsælasta hundakyn heimsins enda líflegir, skemmtilegir og gáfaðir hundar. Þessir litlu hundar eru aftur móti með mikinn persónuleika og því ekki fyrir alla. Þeir þurfa mikla hreyfingu, andlega örvun og þó nokkra athygli (þola illa að vera skildir mikið eftir einir), auk snemmbúinnar þjálfunar og félagsmótunar. Kynntu þér kosti og galla kynsins til að ákveða hvort þetta sé hundur fyrir þig.
Fljúga fuglar? Jack Russell Terrier var ræktaður til veiða og að grafa sig inn í holur, auk þess sem hann hefur mikla veiðiþörf og mjög næmt lyktarskyn. Hann gæti verið að grafa sig frá leiðindum, honum gæti líka þótt þetta svona agalega skemmtilegt, en svo eru líka alltaf líkur á því að hann hafi fundið lykt af einhverju sem hefst við neðanjarðar. Þjálfun getur hjálpað til við að koma í veg fyrir þessa hegðun, en þó ekki að öllu leyti.
Sérsniðin næring fyrir Jack Russell Terrier
Lesa meira um þetta efni
How your dog's nutrition needs change with age
How to adopt a dog
Things to consider before getting a dog
Heimildir
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Dog Encyclopaedia. Útg. 2010 og 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book
5 - American Kennel Club https://www.akc.org/