Við skulum tala um Stóra dana
Stórir dani er kannski ekki danskur, en hann er vissulega frábær. Stærstu hundar af þessu kyni vega um 80 kg og eru stundum kallaðir „Apolló hundanna“ á ensku í höfuðið á hinum forna sólguði. Stóri dani er afar stórt hundakyn sem getur orðið frábær fjölskylduhundur ef hann fær nægilegt pláss til að athafna sig ásamt fullnægjandi þjálfun: hann mun taka jafn mikið pláss í hjarta þínu og á heimilinu.Official name: Stóri dani
Origins: Þýskaland
Drooling tendencies |
|
Þolir hann heitt veður? | |
Hárlos | Suited to apartment living? | ||
Orkuþörf (mikil, lág, í meðallagi) * | Medium | Fjölskylduhundur?* |
|
Færni til að búa með öðrum gæludýrum | Getur dýrið verið eitt?* |
* We advise against leaving pets alone for long stretches. Companionship can prevent emotional distress and destructive behaviour. Ræðið við dýralækninn til að fá ráðleggingar.
Every pet is different, even within a breed; this snapshot of this breed specifics should be taken as an indication.
For a happy healthy and well-behaved pet, we recommend educating and socializing your pet as well as covering their basic welfare needs (and their social and behavioral needs.
Pets should never be left unsupervised with a child.
Contact your breeder or veterinarian for further advice.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Baby age | Birth to 2 months |
Puppy age | 2 to 8 months |
Adult age | 8 months to 2 years |
Rosknir | 2 til 5 ára |
Senior age | Frá 10 ára aldri |
1/7
Lærðu að kynnast Stóra dana
Allt sem þú þarft að vita um þessa tegund
Stóri Dani er einfaldlega stór: ljúfur, vinalegur og ástúðlegur karakter í stórum umbúðum.
Hundakynið er í dag af sömu stærð og býr yfir sama styrkleika og var áður nauðsynlegur til að veiða villigelti. Hins vegar hefur árásarhneigðin verið ræktuð úr kyninu á síðustu öldum og í dag eru hundar af þessu kyni afar blíðir. Stóri dani er myndalegt hundakyn með tignarlegt látbragð sem tjáir sig á kvikan hátt og hefur þykkan, glansandi feld í þremur hrífandi litasamsetningum: ljósgulbrúnn með röndum, svartflekkóttur eða silfurgrár.
Stóri dani er fljótur að læra og að þjálfun lokinni kemur hundinum yfirleitt vel saman við börn og er yndislegt gæludýr. Hins vegar verður að slá þann varnagla að þetta kyn krefst aðeins meiri skuldbindingar en smærra hundakyn. Þú ættir ef til vill ekki að fá þér Stóra dana ef þú átt safn af verðmætu kínversku postulíni, því þegar kraftmikið skottið nær einni góði sveiflu í borðhæð getur slíkt haft hrikalegar afleiðingar.
Stóri dani þarf á nokkuð mikilli hreyfingu að halda en er hins vegar ekki orkumesti hundurinn þrátt fyrir stærðina. Fullvaxnir hundar njóta ýmiss konar hreyfingar, gönguferða og hlaupatúra, og að fá tækifæri til að hnusa um lokað rými (sem betur fer geta þessir hundar ekki stokkið og því er ekki þörf á háu grindverki). Hafa ber í huga að vegna gríðalegrar stærðar er líftími Stóra dana nokkuð styttri en hjá öðrum hundum.
Segja má að eini gallinn við að búa með Stóra dana sé slefið. Stóri dani slefar töluvert. En þessar elskur bæta svo sannarlega upp fyrir það með ánægjunni sem þeir veita hinum mennsku fylginautum sínum.
2/7
Tvær staðreyndir um Stóra dana
1. Scooby Dooby Doo, hvar ert þú?
Talið er að Stóri dani sé fyrirmyndin að hinum ljúfa en huglausa teiknimyndahundi Scooby Doo! Hundakynið hefur einnig birst í teiknimyndasögunum um hinn risastóra „Marmaduke“, en þær hófu göngu sína í Bandaríkjunum á fimmta áratug 20. aldar og urðu síðan efni í kvikmynd árið 2010.
2. Stór (ekki) dani
Stóri dani er auðvitað ekki frá Danmörku: Hundakynið á uppruna sinn að rekja til Þýskalands, en hópur dómara og hundaræktenda hélt fund í Berlín árið 1878 og sameinaði nokkrur hundakyn sem báru mismunandi heiti í eitt kyn: Deutsche Dogge. Sem þýðir þýskur hundur á ensku í beinþýðingu. Kynið varð því þekkt á ensku sem Stóri dani (Great Dane). Þetta er að sjálfsögðu allt mjög rökrétt.
Saga kynsins
Hér er um ævafornt hundakyn að ræða og því ætti ekki að koma á óvart að uppruni Stóra dana liggur ekki alveg ljós fyrir. Myndskreytingar í grafhýsum egypsku faróanna benda til þess að þetta hundakyn hafi verið til í þúsundir ára. Talið er að kyn sem líktust mastiff- og gráhundum ásamt útdauða þýska veiðihundinum „Bullenbeisser“ komi allir til greina sem forverar Stóra dana.
Hins vegar er nokkuð öruggt að forverar Stóra dana hafi verið eftirsóttir til villigaltaveiða og sem varðhundar í Þýskalandi á miðöldum. Þegar hundakynið kom fyrst til Bretlands voru þessir hundar einmitt kallaðir þýskir villigaltarhundar.
Nokkrur svipuð hundakyn voru flokkuð saman á 19. öld undir nýja heitinu „Deutsche Dogge“ (þýskur hundur). Ekki er vitað hvernig heitið breyttist í Stóra dana á ensku og til að flækja hlutina enn frekar er hugsanlegt að þetta sé þýðing á frönsku heiti kynsins: Le Grand Danois.
4/7
From head to tail
Líkamlegir eiginleikar Stóra dana
1. Head
Tignarlegt útlit með stórum og stæltum haus.
2. Face
Tjáir sig á kvikan hátt og hefur eyru sem brettast fram á við.
3. Body
Sterkur, vöðvastæltur og kantaður skrokkur.
4. Coat
Snöggur, þéttur og glansandi feldur í þremur litasamsetningum.
5. Tail
Kraftmikið skottið er frammjótt.
5/7
Things to look out for
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um Stóra dana, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Varist uppþembu
Magaþemba og garnaflækja, þekkt sem uppþemba, hrjáir mörg stærstu hundakynin og er einn helsti kvillinn sem herjar á Stóra dana. Eigendur verða að geta borið kennsl á einkenni slíkra kvilla, m.a. þaninn kvið, eirðarleysi, uppsölur, munnvatnsrennsli, ýlfur eða óeðlilegt hreyfingarleysi og vita hvernig á að bregðast við: leitaðu tafarlausrar aðstoðar dýralæknis. Sumir eigendur kjósa að láta hunda sína gangast undir fyrirbyggjandi skurðaðgerð sem getur veitt hundinum vernd, a.m.k. að hluta til. Skurðaðgerðin kallast magafesting og felur í sér að magaveggir eru saumaðir á sinn stað. Slíkt ætti að koma í veg fyrir lífshættulega garnaflækju en kemur þó ekki í veg fyrir útvíkkun (þembu). Það er góð byrjun.
6/7
Umhirða Stóra dana
Hollráð um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Þú verður að leggja töluvert á þig við að snyrta og þjálfa Stóra danann þinn til að hundurinn haldist við góða heilsu og njóti lífsins. Snöggur og sléttur feldur Stóra dana þarf ekki á mikilli umhirðu að halda, nema þegar hundurinn fer úr hárum einu sinni eða tvisvar á ári en þá er nauðsynlegt að bursta hann einu sinni á dag, annars dugir vikuleg burstun. Stóri dani þarf reglulega hreyfingu – ákjósanlegt er að fara í göngu oft á dag. Þegar liðir þeirra eru fullvaxnir, sem gerist um tveggja ára aldur, geta þeir einnig skokkað eða farið í erfiðari gönguferðir. Æfingar án beislis þurfa að vera í öruggu, lokuðu rými: Stóra dana finnst gaman að nota nefið á sér. Með svona stóran hund þarftu að ganga úr skugga um að hundurinn sé vel þjálfaður og tryggja félagsmótun hans snemma. Samfelld og ákveðin þjálfun skilar sér í ástúðlegum, félagslyndum og vinalegum risahundi.
7/7
Allt um Stóra dana
Já, hann er það. Vel þjálfaður Stóri dani getur verið mjög skemmtilegur: félagslyndur, fús til að þóknast og góður við börn – undir eftirliti að sjálfsögðu. Vegna stærðar sinnar eru þeir ekki fyrir viðkvæma: þú þarft nóg pláss heima til að byrja með og þar sem þeir eru risastórir eru þeir kannski ekki ákjósanlegasti kosturinn fyrir fjölskyldur með mjög lítil börn, þrátt fyrir gæflyndið.
Stóru danir eru ekki þekktir fyrir að vera árásargjarnir, þó að stærð þeirra geti skiljanlega valdið sumu fólki kvíða: það er enn meiri ástæða til þess að tryggja að þeir séu vel þjálfaðir. Stóru danir eru ekki þekktir fyrir mikið gelt heldur, en raddböndin eru aftur á móti í stíl við stærðina og þess vegna fer það ekki fram hjá neinum ef þeir ákveða að láta skoðun sína í ljós.
Read more on this topic
How to adopt a dog
Things to consider before getting a dog
Sources
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Dog Encyclopaedia. Ed 2010 and 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book
5 - American Kennel Club https://www.akc.org/