Spjöllum svolítið um English Cocker Spaniel-hunda
English Cocker Spaniel er alltaf ofarlega á listanum yfir vinsæl hundakyn, ekki síst í heimalandi sínu, Englandi. Enska afbrigðið er nátengt bandaríska frænda sínum, American Cocker Spaniel, en einkennist af lengri haus og trýni og svolítið stærri skrokki. Eyrun virðast ætla að snerta gólfið. English Cocker Spaniel-hundar eru skapgóðir og jafnlyndir og hafa lengi verið meðal vinsælustu gæludýra heimsins.
Opinbert heiti: English Cocker Spaniel
Önnur heiti: Cocker Spaniel, English Cocker, Cocker, EC
Upprunasvæði: Spánn
Slefmyndun |
|
Þolir hann heitt veður? | |
Snyrtiþörf | Þolir hundurinn kalt loftslag? | ||
Hárlos | Getur dýrið búið í fjölbýli? | ||
Gelthneigð | Getur dýrið verið eitt?* | ||
Virknistig* | Mikil | Hentar sem fjölskyldudýr* | |
Færni til að búa með öðrum gæludýrum |
* Við mælum ekki með því að gæludýr séu skilin eftir ein í langan tíma. Félagsskapur getur komið í veg fyrir tilfinningalegt uppnám og eyðileggjandi hegðun. Ræðið við dýralækninn til að fá ráðleggingar.
Ekkert gæludýr er eins, jafnvel þó þau séu af sömu tegund og þetta yfirlit yfir sérkenni hverrar tegundar er aðeins til viðmiðunar.
Til að gæludýr sé ánægt og líði vel mælum við með því að það sé alið upp í samneyti við aðra og að séð sé fyrir grunnþörfum þess (og félagslegum og hegðunartengdum þörfum).
Skiljið gæludýr aldrei eitt eftir með barni.
Hafið samband við ræktandann eða dýralækninn til að fá frekari ráðleggingar.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Ungviði | Fæðing til 2 mánaða |
Hvolpar | 2 til 12 mánaða |
Fullorðnir | 1 til 7 ára |
Eldri hundar | 7 til 10 ára |
Öldungar | Frá 10 ára aldri |
1/7
Fáðu að vita meira um English Cocker Spaniel
Allt sem þú þarft að vita um þessa tegund
Ekki láta þennan silkimjúka feld blekkja þig: English Cocker Spaniel-hundar eru jafn harðgerir og þeir eru snoppufríðir og kunna vel við sig í óbyggðum, enda upphaflega ræktaðir sem veiðihundar. Þetta er tryggur félagi sem er alltaf til í göngutúr, jafnvel langan, sama hvernig viðrar. Hvað elska þeir mest, annað en að fá að hlaupa um úti í náttúrunni? Þig. Hundar af þessu kyni kjósa allra helst að vera nálægt eigendum sínum, hvort sem er úti í náttúrunni eða heima í kósí við arineldinn. Þetta eru mjög trygglyndir hundar að eðlisfari.
English Cocker Spaniel-hundur þarf markvissa, en milda, agaþjálfun allt frá unga aldri. Hundar af þessu kyni geta verið mjög viljasterkir. Veiðieðlið er þeim í blóð borið og stundum eru þeir ekki alveg til í að koma þegar á þá er kallað. Gelt getur verið vandamál hjá English Cocker Spaniel-hundum, rétt eins og hjá öllum veiðihundum. Góð þjálfun getur komið að miklu gagni á því sviði.
English Cocker Spaniel-hundurinn hefur öldum saman verið þekktur fyrir færni sína við að sækja veiðifugla og er oft notaður við fuglaveiðar. Þetta er minnsta hundategundin í flokki veiðihunda og þar sem þeim er eðlislægt að finna og sækja hluti eiga þeir það til að næla sér í hluti á heimilinu og færa þá á aðra staði. Ef þinn hundur virðist eirðarlaus gæti verið gott að fara út í garð og kasta einhverju fyrir hann að sækja. Stöðugleiki er eitt einkenna hunda af þessu kyni og sterkir og nettir líkamar þeirra virðast svífa áreynslulaust yfir akurinn – eða garðinn þinn.
2/7
Tvær staðreyndir um English Cocker Spaniel-hunda
1. Þessi silkimjúku eyru eiga það til að fá sýkingar
Eins og hjá mörgum hundum með síð eyru er mjög mikilvægt að halda hlustunum hreinum og opnum. Hreinsaðu hlustirnar heima og láttu dýralækninn skoða þær vandlega í læknisheimsóknum.
2. Hvaðan kemur heitið?
English
Cocker Spaniel hundategundin er nefnt eftir skógarsnípunni (á ensku „woodcock“), sem er
fugl sem þessum hundum þykir sérlega gaman að eltast við.
Saga kynsins
English Cocker Spaniel á sér ríka sögu sem veiðihundur. Hundar af þessu kyni voru upprunalega þjálfaðir til að sækja bráð við fuglaveiðar og voru mikið notaðir um allt England og annars staðar í Evrópu til að sækja litla fugla, ekki síst skógarsnípuna (woodcock) sem kynið dregur nafn sitt af. Almennt er álitið að sem nytjahundar séu enskir Cocker Spaniels elsta kynið.
Uppruna kynsins má rekja til Spánar, og „Spaniel“ merkir í raun „spænskur hundur“. English Cocker Spaniel-hundar urðu fljótt mjög vinsælir veiðihundar, sérstaklega við fuglaveiðar, fyrir tilkomu veiðiriffla. Spaniel-hundar skiptast í tvo flokka, vatna-Spaniel og land-Spaniel, eftir því hvort tegundin hentar betur við veiðar á vatnasvæðum eða þurrlendi, en enska afbrigðið er það smágerðasta. Þessir hundar urðu mjög vinsælir á Englandi á 19. öld, þegar hundasýningar urðu algengari og tilteknir ræktunarstaðlar festust í sessi. Vegna skapgerðareiginleika og persónutöfra varð English Cocker Spaniel-afbrigðið fljótlega einna vinsælast allra Spaniel-afbrigðanna.
Þegar leið á 20. öldina byrjaði enska afbrigðið að skilja sig frá bandaríska frænda sínum og bæði afbrigði voru skilgreind sem aðskilin afbrigði hjá American Kennel Club árið 1946. Enska afbrigðið hefur lengri haus og trýni og er snögghærðara.
Vinsældir þessara hunda jukust enn árið 1955, þegar Disney-teiknimyndin Hefðarfrúin og umrenningurinn kom út, þar sem Hefðarfrúin var falleg og hrífandi Cocker Spaniel-tík.
4/7
Frá toppi til táar
Líkamleg sérkenni English Cocker Spaniel-hunda
1. Eyru
Löng, silkimjúk eyru
2. Höfuð
Sterklegur haus með mjúkum dráttum og árvökull svipur einkenna þetta hundakyn
3. Líkami
Skrokkurinn er tignarlegur, sterklegur og þéttur, án þess að virðast þrekinn
4. Skott
Skottið er heldur neðar en bakið og stundum upp við afturendann
5. Feldur
Feldurinn getur ýmist verið sléttur eða svolítið liðaður, hausinn er snögghærður með fíngerðum hárum en hárin á skrokknum eru meðallöng.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um English Cocker Spaniel-hunda, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Sjálfstæðir og viljasterkir
English Cocker Spaniel-hundar eru þekktir fyrir glaðværð, en hafa einnig aðra skemmtilega eiginleika. Einn þeirra er þrjóska og viljastyrkur. En svo geta þeir allt í einu tapað þræðinum og stokkið af stað í allt aðra átt. Með góðri þjálfun frá unga aldri læra þeir hver er „alpha“ og hver ekki.
6/7
Umönnun English Cocker Spaniel-hunda
Hollráð um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
English Cocker Spaniel-hundar njóta þess að hreyfa sig, fá að hlaupa og fara í langar gönguferðir og þurfa hreyfingu á hverjum degi. Þetta eru veiðihundar að upplagi og vanir útivistinni. Þeim finnst líka gaman að ærslast með krökkunum (English Cocker Spaniel eru mjög barnvænir hundar!) í garðinum, enda elska þeir að leika sér.
7/7
Allt um English Cocker Spaniel-hunda
Hundar af þessu kyni geta alveg átt til að
gelta, sérstaklega ef hundurinn er skilinn einn eftir innandyra. Þetta eru sprækir hundar sem njóta þess virkilega
að fá að fara út. Cocker Spaniel-hundar vilja gjarnan láta í sér heyra og
eru kannski bara að láta vita af sér. Þetta er næmgeðja kyn með ríka þörf fyrir félagsskap
fjölskyldu og líður best hjá eigendum sem eru oft heima.
English Cocker Spaniel er blíðlegt og ljúft hundakyn
með mikla ástarþörf og sterka löngun til að vera með eiganda sínum. Þannig hundur
elskar að kúra og vill gjarnan þóknast.
Sérsniðin næring fyrir þinn English Cocker Spaniel
Lesa meira um þetta efni
Mixed feeding your dog
Urinary incontinence in dogs
How to help your dog lose weight
Heimildir
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Dog Encyclopaedia. Útg. 2010 og 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book
5 - American Kennel Club https://www.akc.org/