Spjöllum um Beagle-hunda
Beagle-hundar eru meðal vinsælustu hunda heims, enda trygg, ástúðleg og greind dýr. Með stóru brúnu augun sín, mjúk eyrun og „biðjandi“ svip er líka erfitt að standast þessa myndarlegu hunda. Bakgrunnur þeirra sem veiðidýr getur gert þjálfun svolítið erfiða og þeir hafa tilhneigingu til að gelta meira en margir aðrir hundar, en Beagle-tegundin er algjörlega þess virði að leggja sig fram. Með örlitlum tíma og þolinmæði muntu fljótlega hafa þinn eigin „Snoopy“ þér við hlið.Opinbert heiti: Beagle
Önnur heiti: Hound, English Beagle
Uppruni: Bretland
Slefmyndun |
|
Þolir hundurinn heitt veður? | |
Snyrtiþarfir | Þolir hundurinn kalt veður? | ||
Hármissir | Getur búið í íbúð? | ||
Gelthneigð | Mikil |
Getur verið einn?* | |
Orkuþörf (mikil, lág, í meðallagi)* | Meðalmikil | Hentar sem fjölskylduhundur?* | |
Samhæfni með öðrum gæludýrum |
* Við mælum ekki með því að gæludýr séu skilin eftir í langan tíma. Companionship can prevent emotional distress and destructive behaviour. Speak to your veterinarian for recommendations.
Every pet is different, even within a breed; this snapshot of this breed specifics should be taken as an indication.
For a happy healthy and well-behaved pet, we recommend educating and socializing your pet as well as covering their basic welfare needs (and their social and behavioral needs.
Pets should never be left unsupervised with a child.
Contact your breeder or veterinarian for further advice.
Öll heimilisgæludýr eru félagslynd og kjósa félagsskap. Hins vegar er hægt að kenna þeim að takast á við einsemd frá unga aldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Ungviði | Fæðing til 2 mánaða |
Hvolpar | 2 til 12 mánaða |
Fullorðnir | 12 mánaða til 7 ára |
Eldri hundar | 7 til 10 ára |
Öldungar | 10 til 20 ára |
1/7
Lærðu að kynnast Beagle
Allt sem þú þarft að vita um tegundina
Með bangsatrýnið sitt, hangandi eyru og svipmikil augu er það engin furða að Beagle-hundurinn sé ein af ástsælustu hundategundunum sem til eru. Þeir eru mildir og léttir í fari og hafa líka yndislega skapgerð – og með smáþjálfun eru Beagle-hundar frábærir með börnum og öðrum dýrum líka.
Þótt ekki sé vitað nákvæmlega um uppruna Beagle-hundsins er talið að hann hafi verið með okkur í mörg hundruð ár. Talið er að hann sé upprunalega kominn af veiðihundum Rómverja, en hann varð vinsæll í Bretlandi upp úr 1800. Árið 1890 var The Beagle Club stofnaður og ræktunarstaðallinn fylgdi skömmu síðar.
Í dag er Beagle eitt af 10 vinsælustu hundakynjum heimsins, samkvæmt American Kennel Club. Þeir eru líka vinsælir á skjánum okkar, og hafa farið með aðalhlutverk í öllu frá leirmyndaseríunni Wallace og Gromit og vinsæla sjónvarpsþættinum The Wonder Years til barnamyndarinnar Shiloh. Svo var það auðvitað Snoopy, frægasti Beagle-hundur allra tíma, sem kom fram í teiknimyndasögunni Smáfólk.
Með rústrauðan, svartan og hvítan feld er Beagle svipaður Foxhound í útliti, þótt sá síðarnefndi sé mun stærri. Auk þess eru tvö mismunandi afbrigði innan Beagle-kynsins. Bandaríska hundaræktarfélagið gerir greinarmun á þeim sem eru undir 33 cm við öxl og þeim sem eru á milli 33 og 38 cm, en í Bretlandi geta þeir verið aðeins stærri.
Maltese-hundar eru nokkuð heilbrigð hundategund og margir lifa töluvert lengi. Maltese-hundar geta lifað fram í táningsárin og í sumum tilvikum mikið lengur.
Beagle-hundurinn þinn er virkur og orkumikill og þarf að minnsta kosti klukkutíma af hreyfingu á hverjum degi, en helst meira. Þeir eru ræktaðir til að veiða í hópum, pluma sig betur í félagsskap og þola ekki vel að vera skildir eftir einir.
Eitt varnaðarorð enn áður en þú velur Beagle-hund: þeim líkar vel að heyra í sjálfum sér og eru þekktir fyrir að gelta nokkuð oft. Þeir eiga það einnig til að vera aðeins erfiðari í þjálfun en aðrar tegundir, en það er ekkert sem ekki er hægt að sigrast á með smá nammi og örlítilli þolinmæði.
En þegar allt kemur til alls eru þessi trygglyndu dýr dásamlegir félagar. Og ef þú leggur þig aðeins fram muntu fljótlega eignast nýjan besta vin.
2/7
Tvær staðreyndir um Beagle-hunda
1. Magnað lyktarskyn
Ásamt Bloodhound og Basset Hound hefur Beagle-hundurinn eitt best þróaða lyktarskyn allra hundategunda. Reyndar eru þeir með um 220 milljónir lyktarnema í nefinu.
1. Magnað lyktarskyn
Ásamt Bloodhound og Basset Hound hefur Beagle-hundurinn eitt best þróaða lyktarskyn allra hundategunda. Reyndar eru þeir með um 220 milljónir lyktarnema í nefinu.
Saga kynsins
Þrátt fyrir miklar getgátur meðal hundaunnenda er uppruni Beagle-hunda enn nokkuð á huldu. Að öllum líkindum eru þeir þó komnir af rómverskum veiðihundum sem voru notaðir til að veiða kanínur og þess háttar. Í seinni tíð hafa þeir skotið upp kollinum í málverkum og bókmenntum allt frá tímum Elísabetar fyrstu.
Á þeim tíma voru Beagle-hundar minni og með grófari feld - sumir svo litlir að hægt var að bera þá í vasa á veiðijakka. Beagle-hundar hafa stækkað með árunum en smærri útgáfur af tegundinni, þekktar sem „Pocket Beagles“, eru enn til í dag.
Þó að nákvæmur uppruni Beagle-nafnsins hafi glatast með tímanum telja margir að orðið komi frá gelíska hugtakinu „beag“ (lítið). Aðrir segja að það komi frá franska hugtakinu fyrir hljóðið sem veiðihorn gefa frá sér („be'geule“).
Hvað sem því líður er talið að nútímaútgáfa Beagle-hundsins hafi komið fram í Bretlandi í kringum 1830. Talið er að hann sé blanda nokkurra tegunda – þar á meðal hugsanlega Talbot Hound, North Country Beagle og Southern Hound – en persónuleiki hans virðist sameina bestu eiginleika þeirra í einum hundi.
Árið 1890 var The Beagle Club stofnaður í Bretlandi og ræktunarstaðallinn fylgdi skömmu síðar. Í dag birtist Beagle reglulega á listum yfir eftirlætistegundir um allan heim.
Í ljósi góðra hegðunareiginleika Beagle, stærðar þeirra og skapgerðar eru þeir einnig vinsælir á rannsóknarstofum. Sem betur fer vinna mörg góðgerðasamtök að því að finna þeim heimili. Ertu að hugsa um að fá þér Beagle-hund? Af hverju ekki að gera rannsóknarstofuhund að gæludýri?
4/7
Frá höfði til skotts
Líkamleg sérkenni Beagle-hunda
1. Head
Hvelfd höfuðkúpa með löngum hangandi eyrum og köntuðu trýni.
2. Face
Stór, svipmikil augu, ýmist brún eða ljósbrún að lit.
3. Fur
Feldurinn er snöggur, sléttur og þéttur í ýmsum litum, þar á meðal hvítum, brúnum og svörtum.
4. Body
Vöðvastæltur og traustur líkami með beina, jafna yfirlínu og stutta fætur.
5. Tail
Langt skott sem vísar upp, oft hvítt á endanum.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um Beagle-hunda, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Það er mikilvægt að velja viðurkenndan ræktanda
Þó að Beagle-hundar lifi yfirleitt nokkuð lengi, með meðallífslíkur upp á 12 til 15 ár, geta þeir átt á hættu að fá erfðafræðilega sjúkdóma á lífsleiðinni - eins og allar tegundir hunda. Eins og alltaf er lykillinn að kaupa af ábyrgum og virtum ræktendum, þar sem þeir skima fyrir flestum arfgengum sjúkdómum sem hjálpar til við að draga úr áhættunni. Auk þess getur það hjálpað þér og dýralækninum þínum að vita hvort Beagle-hundurinn þinn sé arfberi, eða gæti hugsanlega þróað með sér heilsufarsvandamál síðar, svo hægt sé að skipuleggja ævilanga umönnun í samræmi við það.
6/7
Umönnun Beagle-hundsins
Ábendingar um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Beagle-hundar hafa tilhneigingu til að vera þreklegir og orkumiklir hundar sem vita ekkert betra en að þefa af öllu utandyra. Þeir ættu því að fá að minnsta kosti klukkustund af hreyfingu á hverjum degi, en helst tvær eða fleiri. Roskinn Beagle-hundur getur orðið svolítið latur og viljað bara kúra í körfunni sinni, en þar sem þetta er tegund sem er gjörn á að fitna of mikið er mikilvægt að láta það ekki gerast. Á hvaða aldri sem þeir eru halda Beagle-hundar ávallt eðlislægu veiðieðli sínu, með tilhneigingu til að elta lykt, svo það gæti verið skynsamlegt að hafa þá í ól, eða að minnsta kosti í augsýn. Þeir hafa einnig ótrúlega hæfileika til að sleppa lausir, til dæmis með því að grafa sig undir girðingar, svo það er mikilvægt að fylgjast vel með þeim, jafnvel heima í garðinum.
Einn af mörgum jákvæðum þáttum við að eiga Beagle-hund er hvað þeir þurfa litla feldumhirðu. Þrátt fyrir að þeir séu með þéttan tvöfaldan feld, sem verndar þá fyrir veðri og vindum, er snöggur, sléttur og vatnsheldur feldurinn þeirra auðveldur í þrifum og umhirðu. Að bursta Beagle-hunda einu sinni í viku með meðalstórum bursta ætti að vera nóg til að fjarlægja dauð hár. Auk þess er hárlos yfirleitt bara í meðallagi mikið, en getur þó verið meira á ákveðnum hárlosstímabilum. Vegna snöggs feldsins ætti einstaka bað meira en að duga. Einnig ætti að klippa klær reglulega, bursta tennur eins oft og hægt er og skoða löng „dropaeyru“ Beagle-hundsins vandlega meðan á snyrtingu stendur.
7/7
Allt um Beagle-hunda
Að meðaltali verður fullvaxinn Beagle-hundur ekki hærri en um 38-40,5 cm og hámarksþyngd Beagle-hunds er 13,5 kg. Þar sem þeir verða ekki stærri en það aðlagast Beagle-hundar lífinu á flestum heimilum. Bandaríska hundaræktarfélagið viðurkennir tvær Beagle-gerðir: þeir sem eru undir 33 cm við öxl, og þeir sem eru á milli 33 og 38 cm, og þyngdin er mismunandi eftir því.
Beagle-hundurinn þinn þarf að minnsta kosti klukkutíma af hreyfingu á hverjum degi, en helst tvær klukkustundir eða meira. Ef þú fellur í flokkinn „en ég æfði í síðustu viku!“ er ekki víst að þetta sé kynið fyrir þig. Blanda af göngu, hlaupum og leik virkar vel. Þeir njóta einnig góðs af því að verja tíma utandyra og þefa um í garðinum.
Sérsniðin næring fyrir Beagle-hundinn
Lesa meira um þetta efni
How your dog's nutrition needs change with age
How to adopt a dog
Things to consider before getting a dog
Sources
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Dog Encyclopaedia. Ed 2010 and 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book
5 - American Kennel Club https://www.akc.org/