Tölum um Siberian-ketti
Þéttur og gljáandi feldur Siberian-kattarins er stórkostlegur á að líta og hefur nýst tegundinni afar vel í köldu veðri. Í gegnum aldirnar þróaði þessi tegund katta með sér þriggja laga, einangrandi og vatnsþéttan feld til að þola óvægið veðurfar Síberíu. Forfeður kattanna lifðu af og þróuðust við erfiðar aðstæður utandyra, en í dag búa Siberian-kettir yfirleitt við mun þægilegri aðstæður. Hér er um að ræða ástúðlega og gáskafulla ketti sem finnst alltaf gott að kúra sig í hlýjunni hjá eigendum sínum.Opinbert heiti: Siberian
Önnur heiti: Neva Masquerade (af oddmjórri gerð) eða Siberian-skógarköttur
Uppruni: Rússland
Hármissir |
|
Þolir hann heitt veður? | |
Þörf fyrir hreyfingu (mikil, lítil, miðlungs) | Lítil | Barnvænn?* | |
Samhæfni með öðrum gæludýrum |
Engin gæludýr eru eins, jafnvel þótt þau séu af sömu tegund, og þetta yfirlit yfir sérkenni hverrar tegundar er aðeins til viðmiðunar.
Til að gæludýr séu ánægð og líði vel mælum við með því að þau séu alin upp í samneyti við aðra og að séð sé fyrir grunnþörfum þeirra (og félagslegum og hegðunartengdum þörfum).
Aldrei ætti að skilja gæludýr eitt eftir með barni.
Hafið samband við ræktandann eða dýralækninn til að fá frekari ráðleggingar.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Kettlingur | Fæðing til 4 mánaða |
Kettlingur í vexti | 4 til 12 mánaða |
Fullorðnir | 1 til 7 ára |
Rosknir | 7 til 12 ára |
Öldungar | Frá 12 ára aldri |
1/7
Fáðu að vita meira um Siberian-ketti
Allt sem þú þarft að vita um tegundina
Siberian-kettir eru sannkallaðar rússneskar fegurðardísir, þeir eru með afar þykkan feld, stór og kringlótt augu, loðin eyru og loðið skott. Hins vegar kemur skapgerð kattanna ekki heim og saman við ískaldan uppruna þeirra í Síberíu. Þetta eru ljúfir kettir sem vilja helst af öllu kúra sig hjá eigendum sínum. Kettirnir eiga það jafnvel til að elta eigendur sína um heimilið og leita eftir því að kúra sig í kjöltunni eins og hitapoki af kattaætt.
Siberian-kettir „tala“ jafnvel við eigendur sína. Siberian-kettir gefa frá sér örlítil tíst eða hrín til að hafa samskipti við eigendur sína, fyrir utan að mala og mjálma.
Siberian-kettir eru afar félagslyndir og kemur yfirleitt vel saman við önnur dýr og börn. Fjörugir og sterkbyggðir kettir sem geta orðið galsafullir og hoppað upp á húsgögn eða staðið í trylltum bardaga við músabendil á tölvuskjá. Þessir kettir geta einnig sýnt sínar rólyndu og stilltu hliðar. Það ætti ekki að koma á óvart að Siberian-kettir eru stundum notaðir sem meðferðarkettir.
2/7
Tvær staðreyndir um Siberian-ketti
1. Dúðaður köttur frá Rússlandi
Hugsanlega eru hanskar það eina sem Siberian-kettina vantar til að berjast gegn vetrarhörkunum. Þessir hjartahlýju kettir hafa ótrúlegt þol fyrir veðri og vindum: Kettirnir eru með þrískiptan feld sem hrindir frá sér vatni, þykkan kraga í kringum hálsinn, loðnar afturlappir og loðið skott sem líkist einna helst tófuskotti. Loppur með brúskum eru lokahnykkurinn á vetrarbúningi Siberian-kattanna sem þeir notuðu til að labba um frostbitið landið áður fyrr.
2. Neva Masquerade-kötturinn líkist einna helst gaupu
Nei, þetta er ekki leynikóði, þetta er aðferð við að lýsa Siberian-ketti með afgerandi einkenni og loðin eyru. Siberian-kettir með dekkri hár á útlimum (einnig þekktir sem oddmjóir) eru oft kallaðir Neva Masquerade. Örlitlu brúskana á eyrunum á kattartegundin sameiginlega með villtum (fjarskyldum) frænda sínum, gaupunni. Brúskarnir halda eyrum kattanna hreinum og nefnast einfaldlega gaupubrúskar.
Saga tegundarinnar
Siberian-kettir eru a.m.k. þúsund ára gamlir og talið er að kattarkynið sé skylt norska skógarkettinum. kynin eru augljóslega áþekk líkamlega og þróuðust bæði til að þola nístandi kulda.
Siberian-kettir hafa löngum verið vinsælir til að gegna ólíkum hlutverkum í heimalandinu. Kettirnir eru elskaðir og dáðir á bóndabæjum og sem hjartahlý gæludýr og birtast sveipaðir töfrum í rússneskum þjóðsögum og ævintýrum.
Þessi kattartegund hefur verið sýnd á kattarsýningum frá því á 19. öld. En það var ekki fyrr en eftir lok kalda stríðsins að þessir ótrúlegu kettir öðluðust frægð um allan heim, eða þegar byrjað var að flytja út Siberian-ketti til Evrópu og Bandaríkjanna. Cat Fanciers Association (CFA) samþykkti skráningu kattarkynsins árið 2000 og keppni á sýningum hófst árið 2006.
4/7
Frá höfði til skotts
Líkamleg sérkenni Siberian-katta
1. Skott
Þykkt og loðið skott sem líkist einna helst tófuskotti
2. Eyru
Meðalstór eyru, með lengri hárum neðst og oft brúskum á endunum.
3. Coat
Mjúkur, vatnsþéttur feldur af meðallengd í ýmsum litum.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Hér er að finna áhugaverðar staðreyndir um Siberian-ketti, bæði sérkenni kynsins og yfirlit yfir helstu heilsufarsþætti
Hjartavandamál
Siberian-kettir eru yfirleitt heilbrigðir en tegundin hefur samt sem áður tilhneigingu til að fá ofþykktarsjúkdóm í hjartavöðva, sem er tiltekin gerð hjartasjúkdóms sem veldur ofstækkun á hjartavöðvanum og dregur úr skilvirkni hans. Væntanlegir eigendur skulu ávallt gæta þess að kaupa ketti af viðurkenndum ræktanda sem gengur úr skugga um að nota heilbrigða ketti til undaneldis.
6/7
Umönnun Siberian-katta
Ábendingar um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Það er ekki eins mikið mál og mætti telja að halda þykkum feldi Siberian-katta í góðu ástandi: ef hann er burstaður eða greiddur tvisvar í viku ættu ekki að myndast flókar. Á hárlostímanum gæti þurft að fjölga skiptunum. Regluleg hreinsun eyrna og tanna (daglega ef hægt er) og naglasnyrting eru líka mikilvæg og kötturinn þarf að fá aðgang að klórustöng til að fá útrás fyrir eðlislæga klórþörfina. Siberian-kettir eru galsafullir og elska að fá tækifæri til að hlaupa um og hoppa eða eltast við leikfang. Ef þú hefur næga þolinmæði geta greindir Siberian-kettir auðveldlega lært hlýðniskipanir og kúnstir – sem veitir góða andlega örvun.
7/7
Allt um Siberian-ketti
Í raun ekki – feldur Siberian-kattar kann að vera þykkur og mikilfenglegur en það þarf bara að bursta hann á nokkurra daga fresti til að halda honum flókalausum og fínum. Á hárlostímabilinu (tvisvar á ári) má búast við að bursta aðeins oftar og ryksuga MUN meira.
Enginn köttur veldur í raun alls engu ofnæmi. Hins vegar eru vísbendingar um að Siberian-kynið valdi ekki jafn sterkum viðbrögðum hjá fólki með ofnæmi og önnur kyn. Þetta gæti verið vegna þess að Siberian-kettir séu með minna magn ofnæmisvaldandi prótíns í munnvatninu og á húðinni en aðrir kettir, en rannsóknir á þessu standa enn yfir.
Lesa meira um þetta efni
Your guide to buying a kitten
The cost of owning a cat
Your guide to adopting a cat
Should I choose a pure breed or mixed breed cat?
Heimildir
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Cat Encyclopaedia. Útg. 2010 og 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book