Tölum um Síamsketti
Síamskettir eru rennilegir og þeir bera sig tiginmannlega, enda oft álitnir mestu hefðarkettir allra hefðarkatta. Síamskettir eru að mörgu leyti líkir hundum í háttalagi. Þeir eru ástúðlegir, félagslyndir og ærslafullir. Síamskettir mynda sterk tengsl við eigendur sína og hafa ánægju af samveru við börn og önnur gæludýr. Þeir eiga líka sín uppáhalds leikföng og þreytast aldrei á að leika sér. Þeir sækja meira að segja hluti!
Official name: Síamsköttur
Other names: Konunglegi kötturinn frá Síam
Origins: Taíland
Hair length |
|
Family Pet* |
|
Shedding level | Cohabitation with other pets | ||
Grooming needs | Can stay alone* |
||
Energy Level* | Environment (indoor/outdoor) | ||
Vocal tendencies | High |
* We advise against leaving pets alone for long stretches. Companionship can prevent emotional distress and destructive behaviour. Speak to your veterinarian for recommendations.
Every pet is different, even within a breed; this snapshot of this breed specifics should be taken as an indication.
For a happy healthy and well-behaved pet, we recommend educating and socializing your pet as well as covering their basic welfare needs (and their social and behavioral needs).
Pets should never be left unsupervised with a child.
Contact your breeder or veterinarian for further advice.
Öll gæludýr eru félagslynd og vilja vera í samneyti við aðra. Það er samt sem áður hægt að kenna þeim að vera ein frá ungaaldri. Leitið ráða hjá dýralækni eða þjálfara til að aðstoða við þetta.
Baby age | Birth to 4 months |
Growing kitten age | 4 to 12 months |
Adult age | 1 to 7 years |
Mature age | 7 to 12 years |
Senior age | From 12 years |
1/7
Kynnstu Síamsköttum
Allt sem þú þarft að vita um þessa tegund
Oft er haft á orði að enginn geti „átt“ kött. Það væri þá Síamsköttur ef það væri einhver köttur.
Kettir af þessari tegund eru án nokkurs vafa í hópi þeirra vingjarnlegustu, þeir njóta samskipta við mannfólkið og tengjast oft einni manneskju mjög sterkum böndum. Þeir njóta athygli og samskipta við fjölskylduna sína. Síamskettir minna dálítið á hunda í hátterni.
Síamskettir voru eitt sinn þekktir sem „konunglegu kettirnir frá Síam“ og þeir hafa alltaf tengst Taílandi þótt enn sé margt á huldu um uppruna þeirra. Þó er vitað að svona kettir voru fluttir til Vesturlanda seint á 19. öld þar sem þeir fengu misjafnar móttökur enda hafði enginn séð viðlíka ketti áður. Þeir urðu samt fljótt vinsæl gæludýr.
Það er ekki að tilefnislausu sem þeir fengu viðurnefnið „konunglegi kötturinn frá Síam“. Skrokkurinn er langur og þokkafullur og hálsinn langur. Þeir tækju sig vel út á gröf einhvers faraósins. Þeir hafa líka granna fótleggi, þokkafullt höfuðlag og svipmikil, möndlulaga augu, skærblá á litinn.
Þeir þurfa litla umhirðu, feldurinn er snöggur og sléttur og dregur fram skarpar línur stælts skrokksins. Feldur Síamskatta hefur margs konar litbrigði, allt frá bröndóttum og flekkóttum yfir í reyklitaðan, silfraðan og ljósbrúnan.
Síamskettir eru skarpgreindir og með mjög sterkan persónuleika. Þeir vilja alltaf vita hvað eigandinn er að gera og elta hann gjarnan eins og skugginn. Þeir eru líka furðu „mjálmgefnir“ og „tala“ á sinn einstaka hátt, með hljóðum sem eru gjörólík mjálmi annarra katta.
Síamskettir hafa gegnt mikilvægu hlutverki í dægurmenningu og skotið upp kollinum á málverkum og í bókum í aldanna rás. Þeir hafa líka komið fram í nokkrum kvikmynda Walt Disney, þar á meðal Hefðarfrúnni og umrenningnum (1955), The Incredible Journey (1963), That Darn Cat (1965) og Aðalsmönnunum (1970). Einn vinsælasti Pokémoninn byggði einmitt á Síamsketti.
2/7
2 staðreyndir um Síamsketti
1. Í fullkomnu samræmi
Síamskettir eru einstaklega fallega byggðir. Langir útlimir og skarpar útlínur gera að verkum að þeir virðast nánast yfirnáttúrulegir. Vissir þú að ef þú dregur línu frá nefbroddinum að hæsta punkti eyrnanna, myndar höfuðið fullkominn þríhyrning?
2. Tveir fyrir einn
Síamskettir eru sérlega félagslyndir og una illa einir síns liðs. Ef þú þarft að vera lengi frá heimilinu á daginn getur verið skynsamlegt að fá þér annan Síamskött. Kettirnir tveir geta þá haft félagsskap hvor af öðrum.
Saga kynsins
Síamskettir rekja ættir sínar langt aftur í aldir en fyrstu heimildir um þá er að finna í handritasafni frá hinu forna Ayutthaya-konungsveldi í Síam sem nú heitir Taíland. Handritasafnið heitir „Fræðigreinar um ketti“ og talið er að ritun þess hafi hafist á 14. öld.
Síamskettir bárust þó ekki til Vesturlanda fyrr en á 19. öldinni. Þeir voru í fyrstu þekktir sem „konunglegu kettirnir frá Síam.“ Í upphafi fengu þeir misjafnar viðtökur enda hafði enginn séð svona ketti áður. Árið 1871 voru þrír Síamskettir sýndir á Crystal Palace-sýningunni í London og fengu þeir heldur dræmar viðtökur.
Það leið þó ekki á löngu þar til vinsældir Síamskatta jukust og þeir urðu sannkölluð tískugæludýr. Fyrsta ræktunarmarkmið Síamskatta var samþykkt árið 1892 og innan skamms urðu þeir eftirsóttir beggja megin Atlantshafsins.
Nú eru til tvö afbrigði af Síamsköttum. Þessi tvö afbrigði urðu til við framræktun tegundarinnar: Annars vegar er það nútímalegur sýningarköttur. Búkur hans er lengri og grennri en búkur „hefðbundna“ Síamskattarins auk þess sem höfuðið hefur aðra lögun.
4/7
From head to tail
Líkamleg sérkenni Síamskatta
1. Head
Höfuðið er fleyglaga og hálsinn er langur og tignarlegur
2. Face
Eyrun eru stór og með hvassar brúnir. Augun eru möndlulaga og skærblá
3. Body
Búkurinn er langur og fótleggirnir grannvaxnir. Loppurnar eru fíngerðar og sporöskjulaga. Skottið er langt og líkist svipu.
4. Coat
Feldurinn er snöggur og sléttur. Feldurinn getur verið bröndóttur eða flekkóttur, reyklitaður, silfraður eða ljósbrúnn.
5. Colouring
Einkennandi dökkur litur er oft á snoppu, eyrum, loppum og skotti, hver sem aðal feldliturinn er.
5/7
Hlutir sem gæta skal að
Sérkenni tegundarinnar og almennar heilsufarsupplýsingar. Hér eru áhugaverðar staðreyndir um Síamsköttinn þinn
Síamskettir sjá ekki mjög vel í myrkri.
Þeir hafa einhver fallegustu augu allra katta, skærblá og áleitin. Þeir hafa hins vegar ekki lífeðlisfræðilega eiginleika til að magna upp litla birtu. Margir Síamskettir voru áður fyrr rangeygðir og höfðu þeir betri nætursjón. Það er hins vegar álitinn ræktunargalli að vera rangeygður. sem ræktendur unnu markvisst að því að útrýma. Þetta getur þó verið gott að vita því léleg nætursjón getur aukið slysahættu Síamskatta í myrkri, til dæmis í umferðinni. Hins vegar hafa þeir prýðilega heyrn, ólíkt sumum öðrum dýrum með blá augu.
6/7
Að hugsa um Síamsköttinn þinn
Hollráð um snyrtingu, þjálfun og hreyfingu
Eitt af því sem er frábært við Síamsketti er að þeir þurfa tiltölulega litla feldhirðu. Það þarf í raun bara að renna greiðu yfir feldinn einu sinni í viku til að fjarlægja dauð hár. Síamskettir fara mjög lítið úr hárum miðað við sumar aðrar kattartegundir. Þar sem þeir eru miklir snyrtipinnar þarf sjaldan að baða þá. Þó er ráðlegt að fara með þá á dýrasnyrtistofu tvisvar á ári. Það þarf að skoða eyrun og skima eftir merkjum um sýkingu og bursta tennurnar daglega, ef það er hægt, eða að minnsta kosti tvisvar til þrisvar í viku.
7/7
Allt um Síamsketti
Já. Vingjarnleg framkoma er eitt af því sem einkennir Síamsketti. Þeir eru frábærir félagar að öllu leyti. Þar sem þeir eru bæði skarpgreindir og orkumiklir, geta þeir komið sér í vandræði ef þeir eru skildir eftir einir. Það hentar þeim því best að búa hjá eiganda sem vill gjarnan og getur eytt talsverðum tíma með dýrinu sínu.
Síamskettir eru með langlífustu köttum og þeir verða að meðaltali 12 til 15 ára. Sumir geta orðið 20 ára eða jafnvel eldri. Síamskettir teljast því vera frekar langlífir.
Sérsniðin næring fyrir Síamsköttinn þinn
Read more on this topic
Should I adopt a cat or buy a kitten?
Your guide to buying a kitten
The cost of owning a cat
Your guide to adopting a cat
Should I choose a pure breed or mixed breed cat?
Sources
1 - Veterinary Centers of America https://vcahospitals.com/
2 - Royal Canin Cat Encyclopaedia. Útg. 2010 og 2020
3 - Banfield Pet Hospital https://www.banfield.com/
4 - Royal Canin BHN Product Book